Saka stjórnvöld um slóðaskap 28. apríl 2012 14:56 Guðmundur Franklin Jónsson, formaður Hægri grænna.
Hægri grænir, flokkur fólksins, fordæmir það sem þeir kalla slóðaskap stjórnvalda gegn fólkinu í landinu. Þannig gagnrýnir framboðið meintan slóðaskap stjórnvalda á endurútreikningum- og greiðslum bankanna vegna ólöglegra gengislána til íslenskra heimila. Þá segir í tilkynningu frá framboðinu að nú séu tveir og hálfur mánuður liðinn síðan dómur féll í Hæstarétti, og ekki hafi ein króna verið borguð til baka. Þá segir ennfremur í tilkynningu Hægri grænna að norræn velferðarstefna stjórnvalda sé aðhlátursefni í fermingum og saumaklúbbum. Tilkynninguna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:Ályktun Hægri grænna, flokks fólksins frá 27.apríl 2012Hvar eru endurútreikningarnir á gengislánunum, Jóhanna Sigurðardóttir?Hægri grænir, flokkur fólksins fordæmir slóðaskap stjórnvalda gegn fólkinu í landinu á endurútreikningum- og greiðslum bankanna vegna ólöglegra gengislána til íslenskra heimila. Nú eru tveir og hálfur mánuður liðinn síðan dómur féll í Hæstarétti og ekki 1 króna hefur verið borguð til baka, og bankarnir sýna viðskiptavinum sínum þann dónaskap að senda þeim falsreikninga og rukka þá enn um ólögmætan ofanásmurning við hver mánaðarmót.Lýðskrum forsætisráðherraJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra sagði þegar hún tók við völdum að það væri kominn tími til þess að hlusta á fólkið í landinu og seinna í aðsendri grein í Fréttablaðið þann 17. febrúar síðastliðinn að: „Eitt helsta viðfangsefni ríkisstjórnar og Alþingis allt frá hruni hefur verið að leita leiða til að verja heimili landsins fyrir þeim skelfilegu afleiðingum sem hrunið hafði í för með sér fyrir íslenskt efnahagslíf."Ekkert er að marka orð forsætisráðherra og allar lausnir stjórnvalda á skuldavanda heimilanna hafa verið eitt klúður og aðeins 650 heimilum hefur verið bjargað með 110% leiðinni. Stærstur hluti afskriftanna féll öðrum í skaut en þeim sem þurftu á hjálp að halda. Meira en 40.000 heimili eiga í fjárhagsvanda samkvæmt opinberum tölum. Jóhanna virðist gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að klekkja á íslenskum heimilum og er fyrsti forsætisráðherrann í lýðveldissögunni sem hefur sett afturvirk lög til höfuðs heimilum landsmanna.Í hvaða landi býrðu Jóhanna?Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðarmót. Norræn velferðarstefna stjórnvalda er aðhlátursefni í fermingum og saumaklúbbum. Í dag þarf fólkið og fyrirtækin í landinu að berjast við erlenda vogunarsjóði, afborganir af stökkbreyttum húsnæðislánum með heimalagaðri verðbólgu, aukinni skattpíningu, hækkandi matvælaverði, gjaldskráhækkunum og löngu ákveðin framtíðarplön fjölmargra einstaklinga brostin. Lánlausa vinstri stjórnin virðist engan skilning hafa eða lausnir á efnahagsvandanum. Hækkun heimsmarkaðsverðs eldsneytis og lágt gengi krónunnar ítir upp grunninum sem opinber gjöld af eldsneyti reiknast af. Það er mikið tillitsleysi af ríkinu að kunna sér ekkert hóf við þær aðstæður sem nú eru. Hægri grænir, flokkur fólksins undrar sig á þessu aðgerðarleysi forsætisráðherra og það er engu líkara en að hún búi í öðru landi.Hvar eru endurútreikningarnir á gengislánunum og peningar fólksins í landinu, Jóhanna Sigurðardóttir!
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent Sólin gæti litið við í borginni um helgina Veður Fleiri fréttir Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Sjá meira