Máli Gunnlaugs vísað frá Hæstarétti 14. október 2012 13:52 Gunnlaugur M. Sigmundsson.
Hæstiréttur hafnaði kröfu um að taka meiðyrðamál Gunnlaugs M. Sigmundssonar til efnislegrar málsmeðferðar síðasta föstudag. Gunnlaugur áfrýjaði frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á öðrum tölulið ummæla sem hann kærði bloggarann Teit Atlason fyrir en hann tapaði meiðyrðamálinu í héraðsdómi og var gert að greiða Teiti eina og hálfa milljón króna í málskostnað. Í yfirlýsingu sem Gunnlaugur sendi fjölmiðlum segir orðrétt: „Það er miður að Hæstiréttur hafi hafnað því að málið hljóti efnislega meðferð þrátt fyrir nýlega dóma Hæstaréttar í málum þar sem málatilbúnaður var með svipuðum hætti. Með frávísun á grundvelli formgalla tók dómurinn því ekki afstöðu til þess hvort níð eins og það sem við hjón höfum mátt þola af hálfu Teits Atlasonar sé heimilt lögum samkvæmt." Ástæðan fyrir því að ummælunum var vísað frá var sú að tveir geta ekki átt aðild að sömu meiðyrðakröfunni. Í niðurstöðu héraðsdóms sagði að samkvæmt dómafordæmum Hæstaréttar væri ófrávíkjanlegt skilyrði fyrir aðild annarrar manneskju sú að hver kröfuhafi gerði sjálfstæða aðgreinda kröfu og varðaði frávísun máls af sjálfsdáðum væri það ekki gert. Gunnlaugur segir í yfirlýsingunni að hverjar sem endanlegar lyktir þessa máls verða „er það ljótur blettur á íslensku samfélagi að til sé fólk sem telji pólitískum skoðunum sínum til framdráttar að nota blogg og netmiðla til að niða nafngreinda einstaklinga með ósannindum og gífuryrðum." Yfirlýsinguna endar Gunnlaugur á þessum orðum: „Teitur Atlason hefur lýst áhuga á að bjóða sig fram til setu á Alþingi. Teitur tekur með sér í sína pólitísku vegferð þau vinnubrögð sem hann hefur viðhaft gagnvart okkur og fleira fólki." Hér má svo lesa yfirlýsingu Gunnlaugs í heild sinni:Við málsmeðferð fyrir héraðsdómi Reykjavíkur vegna ærumeiðandi ummæla Teits Atlasonar fékkst ekki efnisleg niðurstaða vegna formgalla. Frávísun héraðsdóms á málinu var í framhaldinu kærð til Hæstaréttar með ósk um að héraðsdómi yrði gert að taka málið til efnislegrar umfjöllunar.Hæstiréttur hefur með úrskurði sínum s.l. föstudag staðfest úrskurð héraðsdóms. Það er miður að Hæstiréttur hafi hafnað því að málið hljóti efnislega meðferð þrátt fyrir nýlega dóma Hæstaréttar í málum þar sem málatilbúnaður var með svipuðum hætti. Með frávísun á grundvelli formgalla tók dómurinn því ekki afstöðu til þess hvort níð eins og það sem við hjón höfum mátt þola af hálfu Teits Atlasonar sé heimilt lögum samkvæmt.Þó það séu vonbrigði að ekki hafi fengist efnislegur dómur í málið vekjum við athygli á þeirri staðreynd að við málsmeðferð fyrir héraðsdómi Reykjavíkur kom skýrt fram að ummæli Teits Atlasonar um okkur eiga ekki við rök að styðjast.Hverjar sem endanlegar lyktir þessa tiltekna máls verða er það ljótur blettur á íslensku samfélagi að til sé fólk sem telji pólitískum skoðunum sínum til framdráttar að nota blogg og netmiðla til að niða nafngreinda einstaklinga með ósannindum og gífuryrðum.Teitur Atlason upplýsti fyrir héraðsdómi að ástæða þess að hann réðst að okkur hjónum með staðlausum skrifum sínum hafi verið sú, að hann hafi látið ummæli sonar okkar sem starfar að stjórnmálum fara í taugarnar á sér. Þjóðfélag er komið í mikinn vanda ef fjölmiðlar og dómstólar láta óátalið að foreldrar eða börn stjórnmálamanna þurfi að sæta persónulegum árásum vegna stjórnmálastarfa ættingja sinna. Slíkt ástand á ekki að líða og við munum halda áfram að berjast gegn slíkri þróun.Teitur Atlason hefur lýst áhuga á að bjóða sig fram til setu á Alþingi. Teitur tekur með sér í sína pólitísku vegferð þau vinnubrögð sem hann hefur viðhaft gagnvart okkur og fleira fólki.Reykjavík, 14.10.12Gunnlaugur M. Sigmundsson
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira