Skuldir Orkuveitunnar þrettánfölduðust á átta árum Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. október 2012 17:15
Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur jukust úr 17.7 milljörðum króna í upphafi árs 2002 í 224 milljarða króna í lok árs 2010 og hækkuðu því um 207 milljarða króna á tímabilinu. Þetta segir í skýrslu úttektarnefndar um Orkuveitunnar sem kynnt var nú í dag. Þar segir jafnframt að þrátt fyrir þetta bendi kennitölur um greiðsluhæfi til þess að fyrirtækið geti staðið við skuldbindingar sínar með ágætum hætti náist langtímafjármögnun. Í skýrslunni segir að vegna skorts á eigendastefnu hafi átt sér stað illa ígrundaðar fjárfestingar án skýrrar tengingar við grunnstarfsemi fyrirtækisins og Orkuveitan hafi fært til gjalda 8,3 milljarða króna vegna fjárfestinga í hlutabréfum. Meginhluti þeirrar fjárhæðar sé vegna viðskipta með hlutabréf í Hitaveitu Suðurnesja, Reykjavík Energy Invest og félaga tengdum fjarskiptastarfsemi. „Gengisáhætta Orkuveitunnar var gríðarlega mikil, eins og sást glögglega þegar skuldir fyrirtækisins tvöfölduðust mælt í íslenskum krónum við gengisfall krónunnar haustið 2008 en stjórn félagsins tók ákvörðun í áhættustefnu um að fjármagna fyrirtækið með lágmörkun vaxtakostnaðar og gengissveiflna að markmiði. Ekki var á neinn hátt tekið tillit til þessarar áhættu við mat á arðsemi fjárfestinga og var áhættunni með þeim hætti frestað til framtíðar. Einnig gerði hún fyrirtækinu kleift að greiða eigendum sínum arð, sem ekki er víst að hefði verið gerlegt ef fyrirtækið hefði verið fjármagnað í takti við tekjur þess," segir í skýrslunni Þá segir 2006 bjó fyrirtækið við talsverða álverðsáhættu sem var á engan hátt varin. Í orkusölusamningum í tengslum við raforkusölu til stóriðju tók Orkuveitan á sig nánast alla áhættu af breytingum á heimsmarkaðsverði á áli. Orkusölusamningarnir voru jafnframt gerðir þegar álverð var mjög hátt í sögulegu samhengi. Miðað við núgildandi forsendur orkusölusamninganna þarf álverð að haldast talsvert hærra en nú í lengri tíma til að arðsemi þeirra sé ásættanleg fyrir Orkuveituna.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Sjá meira