Nauðsynlegt að endurskoða fyrirtækjaform Orkuveitunnar BBI skrifar 10. október 2012 20:35 Skjáskot úr Kastljósi kvöldsins.
Ásu Ólafsdóttur, nefndarmaður í úttektarnefndinni um stöðu Orkuveitunnar, finnst umhugsunarvert hve litlar umræður fóru fram á Alþingi um lög um rekstur Orkuveitunnar áður en þau voru samþykkt. Lögin voru aðeins rædd tæpa tvo sólarhringa á þingi áður en þau voru samþykkt. Það er merkilegt fyrir þær sakir að fyrirtækjaform Orkuveitunnar var frekar sérstakt og því hefði verið eðlilegt að ræða það vel. Bæði stjórn fyrirtækisins og forstjóri höfðu ákveðið frumkvæðishlutverk, sem telst mjög óvenjulegt. Í venjulegu hlutafélagi markar stjórn stefnuna og forstjóri fylgir. Ása benti á þetta í Kastljósi kvöldsins á RÚV. Þar sagði hún einsýnt að fyrirtækjaform Orkuveitunnar þyrfti að endurskoða. „Bæði þarf að skerpa á hlutverki stjórnar gagnvart forstjóra og ákvarða betur hver á að vera tilgangur félagsins," sagði hún. Nefndarmennirnir Margrét Pétursdóttir, Dr. Ómar H. Kristmundsson og Ása komu í Kastljósið í kvöld og fjölluðu um skýrsluna. Þau sögðu að mikilvægt væri að skýrslan yrði lesin vel enda innihéldi hún mikla sögu. Þau sögðust ekki hafa fundið dæmi um spillingu innan Orkuveitunnar. Hins vegar var hlutverk stjórnarinnar óljóst og óskýrt. Sömuleiðis hlutverk og ábyrgð eigenda. Vegna pólitískra átaka skapaðist svigrúm fyrir stjórnendur til að taka stórar ákvarðanir sem hefðu átt að fá meiri umfjöllun meðal stjórnar og eigenda. Þau settu spurningarmerki við það að kjörnir fulltrúar sætu í stjórn fyrirtækisins enda vildu þeir gjarna hugsa meira um eigin hagsmuni, þ.e. að ná endurkjöri, heldur en hagsmuni fyrirtækisins við reksturinn. Sem dæmi tóku þau gjaldskrárhækkanir Orkuveitunnar, en við stjórn fyrirtækisins hafði skapast hefð fyrir því að minnihluti stjórnar bókaði alltaf á móti gjaldskrárhækkun, burt séð frá því hvort fyrirtækið þyrfti á henni að halda eða ekki.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Fleiri fréttir Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Sjá meira