Vonar að 28 kaflar verði hafnir fyrir lok ársins ÞJ skrifar 13. október 2012 00:30 Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fagnar niðurstöðum framvinduskýrslu ESB og vonast til að viðræður hefjist í flestum málalfokkum fyrir árslok. Fréttablaðið/Vilhelm
Framvinduskýrsla um aðildarviðræður Íslands við ESB, sem kynnt var á dögunum staðfestir að viðræður ganga vel, að mati Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Hann vonast til þess að viðræður verði hafnar um 28 kafla af 33 fyrir árslok. „Það sem mér finnst mikilvægast í skýrslunni er að framkvæmdastjórnin lýsir því yfir í skýrslunni að hún sé fullviss um að ESB muni í fyllingu tímans takast að kynna heildarlausn fyrir viðræðurnar þar sem tekið er tillit til bæði sérstöðu Íslands og væntinga hér á landi og að það muni um leið ríma við regluverk ESB,“ segir Össur og bætir því við að þetta megi túlka sem svo að samningsaðilar nálgist nú viðræðurnar á grundvelli sérþarfa Íslands. Á kynningarfundi vegna framvinduskýrslunnar sagði Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, að líkur væru á því að samningaviðræður hæfust í fjórum málaflokkum til viðbótar á svokallaðri ríkjaráðstefnu í lok mánaðarins. Nefndi hann þar kaflana um fjármálaþjónustu, hagtölur, dóms og innanríkismál og tollabandalagið. Taldi Summa ekki ólíklegt að enn fleiri samningakaflar yrðu teknir upp fyrir árslok, en sem stendur hafa samningaviðræður þegar hafist um átján kafla og viðræðum er lokið um tíu þeirra. Össur segist vongóður um að fyrir áramót verði viðræður hafnar í þeim 28 köflum sem Ísland hefur kynnt samningsafstöðu sína.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira