Innlent

Handtekinn fyrir sjálfsfróun á Hverfisgötunni

Athugið að myndin er úr safni.
Athugið að myndin er úr safni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann skömmu fyrir klukkan sex í morgun en sá hafði stillt sér upp gegn fjölda fólks, tekið getnaðarlim sinn út og hafði tilburði til að fróa sér. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann fékk að sofa úr sér, en hann var mjög ölvaður samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Skömmu áður en þetta átti sér stað þá var ekið á gangandi vegafaranda á Hverfisgötu. Lögreglan segir raunar að málavextir séu mjög óljósir en sá sem er sagður hafa orðið fyrir bifreiðinni var skoðaður af sjúkraflutningamönnum sem fundu út að hann væri ómeiddur.

Engu að síður þótti ástæða til þess að vista manninn í fangageymslu lögreglunnar þar sem hann var verulega ölvaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×