Þverbraut siðareglur en lék þó við Albani 13. október 2012 06:00 Fyrirliðinn missteig sig hrapallega í viðtali fyrir landsleikinn við Albani í gær en segist munu læra af reynslunni. Fréttablaðið/Anton
Þrátt fyrir grófar alhæfingar um Albani sem glæpaþjóð hélt Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, sæti sínu í byrjunarliðinu þegar Íslendingar léku við Albani ytra í gær. Ummælin umdeildu lét landsliðsfyrirliðinn falla í aðdraganda leiksins. „Það er mikil fátækt í þessu landi og þetta eru mestmegnis glæpamenn,“ sagði Aron meðal annars um gestgjafaþjóðina í viðtali við knattspyrnuvefinn Fotbolti.net. Bætti hann við að albanska þjóðin væri „ekki upp á marga fiska“. Ummæli Arons stangast augljóslega á við siðareglur Knattspyrnusambands Íslands sem tóku gildi í ársbyrjun 2010: „Fulltrúar mega ekki misbjóða virðingu einstaklinga, eða hópi einstaklinga með orðum eða athæfi sem bera í sér fyrirlitningu, manngreinarálit eða mannorðsspjöll hvað varðar kynferði, þjóðerni, kynþátt, litarhaft, menningu, tungumál, trúarbrögð eða kynhneigð,“ segir í 5. grein siðareglna KSÍ. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagði fyrir leikinn að ekki kæmi til greina að draga Aron út úr liðinu þar sem búið væri að stilla því upp fyrir leikinn. Hann var þó alls ekki ánægður. „Það er enginn ánægður með þessa stöðu sem upp er komin. Það er nánast eins og liðið hafi gert sjálfsmark áður en leikurinn byrjaði,“ sagði Geir, sem kvaðst hafa beðið forseta albanska knattspyrnusambandsins og einn albanskan þingmann að auki afsökunar. Sjálfur baðst Aron afsökunar í yfirlýsingu fyrir leikinn. „Vil ég hér með biðjast auðmjúklega afsökunar á þessum ummælum, sem eru ekki fyrirliða íslenska landsliðsins sæmandi,“ sagði hann. „Aron hefur beðist afsökunar en þessu máli er ekki lokið,“ voru viðbrögð formanns KSÍ. „Við höfum ekki rætt um hvort að hann eigi að stíga til hliðar sem fyrirliði,“ sagði Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari. „En vonandi verður þetta til þess að Aron hafi lært af sínum mistökum og muni haga sér óaðfinnanlega í framtíðinni.“
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Fleiri fréttir Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Sjá meira