Innlent

Fleiri bekki svo fólk hreyfi sig

GAR skrifar
Fjölga á bekkjum í bænum.
Fjölga á bekkjum í bænum.
Öldungaráð Hafnarfjarðar leitar nú til bæjarstjórnar, fyrirtækja og félagasamtaka í bænum um að koma að verkefninu „Brúkum bekkinn“.

Uppsetning bekkja með 250 til 300 metra millibili á að stuðla að aukinni hreyfingu meðal eldri borgara. Samstarf er hafið við bæjaryfirvöld um kortlagningu gönguleiða og mat á þörf fyrir bekki og staðsetningu þeirra.

„Hver bekkur verður merktur verkefninu og gefanda og mun félag sjúkraþjálfara sjá um merkingu og greiða kostnað við merkingu,“ segir í erindi öldungaráðsins. Umhverfis- og framkvæmdaráð bæjarins samþykkti að fjármagna tíu bekki á 109 þúsund krónur stykkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×