Segir geðfötluðum ekki verr sinnt en hjá ríkinu Hugrún Halldórsdóttir skrifar 13. október 2012 18:22 Halldór Halldórsson.
Yfirgeðlæknir á Kleppi segir aðstæður geðfatlaðra hafa versnað eftir að málaflokkurinn færðist frá ríkinu til sveitarfélaga. Formaður sambands Íslenskra sveitarfélaga er þessu ósammála. Tuttugu einstaklingar, eða fjórir af hverjum fimm sjúklingum sem hafa lokið endurhæfingu á Kleppi, sitja þar fastir vegna þess að framhaldsúrræði skortir hjá sveitarfélögunum. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Halldór Kolbeinsson, yfirgeðlæknir á Kleppi segir þar málefnum geðfatlaðra illa sinnt af sveitarfélögunum og að aðstæður hafi versnað síðan málaflokkurinn færðist frá ríkinu fyrir tveimur árum. Ástandið sé sérstaklega slæmt í Kópavogi, Hafnarfirði og Árborg, en mikið sé nú um að sjúklingar flytji lögheimili sitt til höfuðborgarinnar og Reykjanesbæjar til að komast á biðlista eftir úrræðum. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarstjórnarmenn ekki sammála þessari gagnrýni. „Og segja á móti að það sé verið að vinna í úrræðum í viðkomandi sveitarfélögum eða að þau séu til staðar með einhverjum hætti en hafi ekki endilega verið það þegar ríkið var með málaflokkinn. Þannig að menn eru bara hissa að þetta skuli koma fram með þessum hætti," segir Halldór. Halldór mun óska eftri að ítarlega verði farið yfir málið af hálfu félagsmálasviðs íslenskra sveitarfélaga. „Þannig að við séum algjörlega með klára greiningu á þessu, en staðan er þessi núna að ég hef talað við fólk í sveitarfélögunum og það kannast ekki við annað en að það sé verið að betrumbæta málin frá því sem var þegar ríkið var með málaflokkinn,"
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira