Innlent

Ofurölvi ökumaður lenti ofan í húsgrunni

Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu undir morgun um að bíll væri ofan í húsgrunni í suðurbænum og að maður væri þar um borð.

Við athugun kom í ljós að þar sat ökumaðurinn, ofurölvi, og var að reyna að átta sig á hvar hann væri, og hvert hann ætlaði.

Lögregla tók ómakið af honum og vistar hann í fangageymslum, þar til hann nær áttum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×