Innlent

Varað við lúmskri ísingu

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.
Ábendingar frá veðurfræðingi fyrir kvöldið og nóttina Vaxandi úrkoma um vestan- og norðvestanvert landið í kvöld og hægt hlýnandi veður.

Síðar í kvöld er reiknað með hríðarveðri og takmörkuðu skyggni s.s. á Holtavörðuheiði, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði með V- og SV-átt, um 10-15 m/s.

Eins er fram á kvöld hætt við staðbundinni og lúmskri ísingu í uppsveitum sunnanlands og í Borgarfirði þegar úrkoma fellur á frostkalda vegina.

Færð: Hálkublettir eru á Mosfellsheiði, Þingvallavegi og Lyngdalsheiði. Einnig eru hálkublettir við Hvolsvöll og austur að

Eyjafjöllum.

Um vestanvert landið er hálka á Holtavörðuheiði, Fróðárheiði, Vatnaleið og á sunnanverðu Snæfellsnesi. Hálkublettir eru á Bröttubrekku og Svínadal.

Á Vestfjörðum er hálka á Kleifaheiði, Mikladal, Hálfdán, Dynjandisheiði og á Hrafnseyrarheiði annars eru hálkublettir á fjallvegum.

Hálka eða hálkublettir eru mjög víða á Norðurlandi en flughált er í Skagafirði milli Sauðárkróks og Ketiláss og í Þingeyjarsýslu milli Ásbyrgis og Kópaskers.

Á Austurlandi er hálka á Vatnsskarði eystra og Fjarðarheiði en einnig eru sumstaðar hálkublettir. Suðaustanlands eru hálkublettir milli Kirkjubæjarklausturs og Breiðamerkurlóns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×