Stjórnendur telja svarta vinnu vaxandi vandamál Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 26. október 2012 18:53
Langflestir þeirra stjórnenda sem þátt tóku í könnun Samtaka atvinnulífsins telja að svört vinna sé vaxandi vandamál hér á landi. Framkvæmdastjóri samtakanna kallar eftir skjótvirkari úrræðum til að bregðast við þegar upp kemst um svik. Stjórnendur fimmhundruð og sextán fyrirtækja, sem saman telja um þrjátíu og fimm þúsund starfsmenn tóku þátt í könnuninni og þeir eru flestir á einu máli. Áttatíu og tvö prósent þeirra segja svarta vinnu vera vaxandi vandamál hér á landi og aðeins átján prósent eru ekki þeirrar skoðunar. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir niðurstöðurnar áhyggjuefni og að þær sýni hve vandamálið sé víðtækt. „Svört atvinna er eitthvað sem fyrirtækin sem eru með allt sitt á hreinu geta ekki þolað. Það verða allir að sitja við sama borð, menn geta ekki búið við heimatilbúnar reglur eða skattkerfi, það verða allir að fara eftir sömu leikreglum." Undanfarin misseri hafa Samtök atvinnulífsins, ASÍ og Ríkisskattstjóri markvisst unnið í þessum málum og hefur sú vinna að sögn Vilhjálms varpað ljósi á vandamálið. Að hans sögn vantar þó úrræðin til að bregðast við þegar upp kemst um svarta vinnu en eins og staðan er í dag er lítið hægt að gera fyrr en á öðru ári eftir að upp kemst um málið. Það sem við erum að tala um er það að þegar það blasir við að það er ekki verið að fylgja reglunum, að þá sé gefinn eh tiltekinn frestur til að koma hlutunum í lag. Ef það verði ekki uppfyllt, þá hafi það einhverjar afleiðingar.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Erlent Fleiri fréttir Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Sjá meira