Að stjórna skipulagi Arna Mathiesen skrifar 8. nóvember 2012 06:00 Fagna ber nýlegum pistli ráðamanns hjá Reykjavíkurborg um góð tengsl borgar og sjávar. Gott ef Geirsgata verður gerð að borgargötu og bílum þannig verði gert minna hátt undir höfði í borgarmyndinni. Tilvísun í skala gamla bæjarins fyrir nýbyggingar, og endurnýting gamalla bygginga í miðbænum er til fyrirmyndar. Greinin kallar þó fram áleitnar spurningar. Vinnur borgin kerfisbundið með endurnýtingu bygginga, líka í öðrum bæjarhlutum, og á hvern hátt? Getur almenningur, sem hefur áhuga á að vannýttar byggingar í nágrenninu nýtist betur, komið að málinu í samvinnu við borgaryfirvöld? Smáskalabyggð með neðanjarðarbílastæðum við höfnina hljómar vel og tekur sig fallega út á glansmyndum þótt hætt sé við að hún auki fjarlægðina og skapi fyrirstöðu á milli gamla hverfisins og hafnarinnar. Stóra spurningin er þó hvort rökrétt sé að byggja á dýrasta grunninum í bænum þegar þörfin hefur aðallega aukist fyrir ódýrt íbúðarhúsnæði eftir hrunið. Hár byggingarkostnaður á þessum stað gerir áform um félagslega blandaða byggð óraunsæ. Eins auka áætlanir um hátt hlutfall lítilla íbúða einsleitni þar sem ekki er pláss fyrir barnafjölskyldur og annars konar sambýli sem gæti boðið upp á margbreytileika. Ef borgin lætur einkageiranum eftir stjórnina á framkvæmdinni mun hún nær örugglega neyðast til að éta ofan í sig gamla drauma um ódýrar íbúðir og margbreytileika við höfnina síðar. Þetta sanna dæmi, t.d. í Ósló sem staðið hefur í svipuðu ferli. Til að minnka kostnaðinn ætti borgin að leita fyrirmynda í þokkafullri íbúðabyggð á sanngjörnu verði, en þetta er nær einungis að finna þar sem íbúarnir sjálfir, eða borgin fyrir þeirra hönd, stjórnar framkvæmdinni og býr til reglurnar án aðkomu aðila sem aðeins vilja koma að málinu til að fjárfesta og ávaxta pund sitt vel. Það væri líka miklu ódýrara að byggja í ónýttum millibilum í borginni (t.d. öllum gæsluvöllunum sem lagðir eru niður) og í ókláruðum hverfum á jaðrinum með ofgnótt ónýtts rýmis og innviða. Þetta hefði einnig þann kost að skjóta stoðum undir meiri þjónustu og atvinnutækifæri inni í hverfunum og drægi því úr þörf fyrir notkun einkabílsins. Í Ósló er þekkt að öflugu fyrirtækin í byggingariðnaðinum séu með fólk í fullri vinnu sem eins konar hrægamma á skrifstofum borgarskipulags til að þvinga í gegn byggingar á stöðum þar sem hægt er að selja lúxusíbúðir, meðan grannar sem ekki líst á blikuna og sem stunda aðra vinnu á skrifstofutíma fá ekki rönd við reist. Forðist Reykjavíkurborg þess konar þrýsting, getur hún aftrað meira tjóni en orðið er, í borg þar sem forsendur fyrir byggð hafa gjörbreyst eftir hrunið. Vík ég nú að „smáatriði“ í textanum um að svæðið milli miðbæjarins og Hörpu sé „tekið út fyrir sviga…vegna áforma erlendra aðila að byggja hótel“. Er hótelið bleiki fíllinn í miðbænum sem byggja á fyrir framan tónlistarhúsið? Er sátt um að Harpa verði helst sýnileg frá bílum sem keyra Sæbraut, úr leðurstólum Seðlabankans og hótelgluggum lúxushótels? Felst í þessu áhætta um slæma landkynningu, þegar gestir fara að spá í hvaða asnar Íslendingar séu að klína útlensku merkjahóteli af miklu ódýrari hönnun fyrir sunnan Hörpuna? Var ekki horfið frá hugmyndinni um að Harpa ætti að vera falin bak við aðrar byggingar þegar ákveðið var nota að rándýrt listaverk sem efni í útveggina? Byggingin er sérhönnuð til að hennar sé notið sem skúlptúrs úr fjarlægð. Hefur aldrei verið íhugað að búa til opið almenningsrými yfir bílastæðahúsið sem er í byggingu undir reitnum úr því sem komið er? Er ekki til heppilegri reitur fyrir hótel, eða aðrar byggingar sem væri hægt að endurnýta til þess arna, t.d. einhverjir hálfbyggðu lúxusturnanna við Sæbraut með útsýni bæði til Hörpu og Esju? Er stolt landans, (þrátt fyrir skuldabaggann) þar sem hann nýtur útsýnisins úr miðbænum til eins stærsta tónlistarhúss heims með Esju í bakgrunninn, einskis virði? Hvað þýðir að taka hlutina út fyrir sviga í skipulagsmálum: Að sleppa því að stjórna og láta „erlenda aðila“ stjórna borginni, í hagnaðarskyni? Það er alvarleg rangfærsla í lokaorðum greinarinnar um að horfið sé frá útþenslu borgarinnar, því áætlanir liggja fyrir um iðnaðarsvæði austan við byggðina, langt út á græna útivistarsvæðið, því miður. Ágætt ef þeir sem bera ábyrgðina geri grein fyrir hverju þetta sætir. Ég nýti tækifærið til að samþykkja nafnið Spilhúsastíg, sem spurt er hvort ekki sé bara samþykkt. Gott mál, en væri hægt að biðja um samþykki borgaranna í afdrifaríkari málum? Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun