Vonast til aðkomu græns sjóðs ríkisins 8. nóvember 2012 06:00 Svona er umhorfs inni í hreinsistöð Sorpu í Álfsnesi þar sem metangas úr ruslahaugnum er hreinsað til að það henti á bíla.Fréttablaðið/Valli
Stefnt er að því að ný gasgerðarstöð fyrir lífrænan úrgang verði reist á umráðasvæði Sorpu í Álfsnesi. Með slíkri stöð mætti allt að þrefalda gasframleiðslu fyrirtækisins. Í nýjasta tölublaði FÍB blaðsins, sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda gefur út, er gagnrýnt að ekki liggi fyrir hvar, hvernig eða hvenær nýja gasgerðarstöðin rísi. Vara þurfi fólk við kaupum á metanbílum ef gasskortur sé fyrirséður á markaði. Oddný Sturludóttir, stjórnarformaður Sorpu, segir mikið verk hafa verið unnið hjá stjórn Sorpu í metanmálum og blað brotið með stefnumótun stjórnar í þeim efnum síðasta vor. Ein meginniðurstaða hennar hafi verið að gasgerðarstöð væri langbesta leiðin til þess að mæta markmiðum um að draga úr urðun og búa til verðmæti úr ruslinu, um leið og svarað væri kalli eftir meira metani. Í stefnumótuninni kemur fram að miðað við sölutölur ár aftur í tímann verði búið að fullnýta framleiðslugetu Álfsness um mitt næsta ár. Frekari stækkun gashreinsistöðvar Sorpu geti þó minnkað líkur á að skortur myndist. Þá hafa fleiri boðað framleiðslu á metani á næstunni, svo sem metanorkuverið að Melum í Hvalfjarðarsveit, sem hefja á framleiðslu á næsta ári. Oddný segir að í vor hafi strax verið hafist handa við að búa til rekstraráætlanir og huga að fjármögnun nýju gasgerðarstöðvarinnar. Um tvo milljarða króna kosti að byggja svona stöð en þeim kostnaði mætti skipta í tvennt á meðan stöðin yrði reist í tveimur áföngum. „Við höfum sýnt því mikinn áhuga að græni fjárfestingarsjóðurinn sem ríkisstjórnin hefur talað um að koma á legg geti orðið hluti af fjárfestingarpakkanum til að byrja með," segir hún. Nokkrar leiðir til uppbyggingarinnar hafi nú verið lagðar á borð eigenda Sorpu. Þær verði á næstu vikum og mánuðum teknar fyrir í bæjarráðum og borgarráði áður en ákveðið verði endanlega hver þeirra verði ofan á. Viðræður um aðkomu ríkisins hafi þegar verið hafnar. „Við í Sorpu höfum hins vegar haldið því mjög á lofti að gasgerðarstöð er eina raunhæfa leiðin til að mæta öllum þessum markmiðum, að losna við úrgang á mjög umhverfisvænan og hagkvæman hátt og fá út úr því á móti tvær afurðir, annars vegar metan og hins vegar frábæran jarðvegsbæti sem getur farið í að græða hér upp örfokaland." olikr@frettabladid.is
Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira