Innlent

Fjórir teknir vegna fíkniefnaaksturs

Fjórir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu í nótt, allir vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.

Tveir voru auk þess réttindalausir og tveir farþegar úr einum bílnum voru handteknir, eftir að lögregla fann fíkniefni í fórum þeirra.

Engin ökumaður var tekinn vegna ölvunaraksturs en lögregla var nokkrum sinnum kölluð út vegna óláta og ölvunar við Flensborgaarskóla í Hafnarfirði þar sem skólaball var haldið í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×