Innlent

Kennarar leiðir á skólabjúgum

Þegar grunnskólakennarar í Hafnarfirði fengu bjúgu og pakkamús fengu starfsmenn á bæjarskrifstofunni ávaxtafylltan lambaframpart.
Þegar grunnskólakennarar í Hafnarfirði fengu bjúgu og pakkamús fengu starfsmenn á bæjarskrifstofunni ávaxtafylltan lambaframpart.
„Með góða magafylli er líklegra að umræður á kennarastofunni verði jákvæðar,“ segir stjórn Félags grunnskólakennara í Hafnarfirði, sem í bréfi til bæjarstjóra kveður starfsmönnum bæjarins mismunað varðandi hádegisverð.

Í nóvember í fyrra kvörtuðu kennararnir undan því við fræðsluráð Hafnarfjarðar að á sama tíma og sumir bæjarstarfsmenn fengju niðurgreiddan mat á veitingastöðum þyrftu kennarar að gera sér „upphitaðan skólamat“ að góðu. Í kjölfarið var sú breyting gerð að starfsfólk á bæjarskrifstofunni fékk ekki lengur niðurgreiddan mat á veitingahúsum heldur aðsendan mat frá Skólamat. Kennarar segja siðferðið þó enn vera tvöfalt.

„Starfsfólk skrifstofunnar hefur sérmatseðil hjá Skólamat. Sá matseðill er tvíréttaður alla daga (súpa og aðalréttur) og mun fjölbreyttari en sá sem stendur kennurum til boða úti í skólunum og er eldaður með smekk og bragðlauka barna í huga,“ segir í bréfi stjórnar kennarafélagsins til bæjarstjórans.

„Á meðan skrifstofufólkið fékk ávaxtafylltan lambaframpart með sætkartöflusósu og súpu máttu kennarar gera sér að góðu skólabjúgu með pakkamús,“ lýsa kennararnir, sem enn fremur eru ósáttir við hvernig framleiðslu matarins er háttað. Þeir hafi aðeins þrjátíu mínútna hádegishlé og standi í röð með nemendum sínum. „Í sumum skólum mega kennarar fara fram fyrir nemendur til að sækja sér matinn en þykir það óþægilegt og ekki sýna gott fordæmi. Flestir eru þess vegna með nesti.“

Þá segir stjórnin grunnþarfir hafa áhrif á líðan fólks og að vaxandi óánægja sé á kennarastofum bæjarins. „Ástandið kemur niður á félagslífi kennara, hefur margþætt áhrif á vinnustaðamóralinn og líðan kennara í starfi,“ segir í bréfinu. Þar ofan á annað kemur fram að kennarar borgi meira fyrir matinn en kjarasamningur þeirra segi til um, 650 krónur í stað 552 króna.

„Við leggjum fram þá ósk að kennarar fái að sitja við sama borð og annað starfsfólk bæjarins. Að þeim gefist kostur á að kaupa sama mat, á réttu verði og fái hann afgreiddan inn á kennarastofur,“ segir stjórnin í bréfinu sem lagt var fyrir bæjarráð í síðustu viku. Þar var ákveðið að fela Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur bæjarstjóra að ræða málið við kennarana. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×