582 þúsund ferðamenn sótt Ísland heim frá áramótum 6. nóvember 2012 16:26 Ferðamenn í miðborg Reykjavíkur.
Samkvæmt talningum Ferðamálastofu fóru 44.994 erlendir ferðamenn frá landinu í október síðastliðnum eða um sex þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011 samkvæmt tilkynningu sem Ferðamálastofan sendi frá sér. Ferðamenn í október í ár voru 15,9% fleiri en í október árið 2011. Þegar litið er til fjölda ferðamanna á ellefu ára tímabili (2002-2012) má sjá að jafnaði 10,2% aukningu milli ára frá árinu 2002. Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í október frá Bretlandi (21,0%), Bandaríkjunum (13,1%) og Noregi (11,1%). Ferðamenn frá Danmörku (7,5%), Þýskalandi (6,0%) og Svíþjóð (5,9%) fylgdu þar á eftir. Af einstaka þjóðum fjölgaði Bretum og Norðmönnum mest milli ára í október. Þannig komu um 1.800 fleiri Bretar í ár en í fyrra og tæplega 1.300 fleiri Norðmenn. Það sem af er ári hefur 581.951 erlendur ferðamaður farið frá landinu eða 85.055 fleiri en á sama tímabili í fyrra en um er að ræða 17,1% aukningu milli ára. Aukning hefur verið frá öllum mörkuðum, 34,0% aukning frá Bretlandi, 16,7% frá N-Ameríku, 12,6% frá Mið- og S-Evrópu, 9,8% frá Norðurlöndunum og 23,2% frá löndum sem eru flokkuð undið "Annað". Um 35 þúsund Íslendingar fóru utan í október síðastliðnum, 10,4% fleiri en í október 2011. Frá áramótum hafa 310.698 Íslendingar farið utan, 6,3% fleiri en árinu áður þegar brottfarir mældust um 292 þúsund. Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir frá landinu um Leifsstöð. Skiptingu milli landa og nánari upplýsingar má sjá undir liðnum Talnaefni/Ferðamannatalningar á vef Ferðamálastofu - ferdamalastofa.is.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira