Innlent

Þakklátur fyrir traustið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
„Mín viðbrögð eru bara gleði og ég þakka traustið, segir Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður sem er í þriðja sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna þegar fyrstu tölur hafa verið kynntar.

„Það eina sem ég er að hugsa núna það er að koma atvinnulífinu af stað þannig að hér geti farið fram einhverjar fjárfestingar og verðmætasköpun - hér sé hægt að byrja á grunninum og sjá svo hvað við eigum eftir," segir Brynjar aðspurður um það hvað hann vilji gera þegar hann er kominn á þing.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×