Björgvin: Baráttan og íslenska hjartað vann þennan leik Henry Birgir Gunnarsson í Vrsac skrifar 18. janúar 2012 21:38 Guðmundur þjálfari fagnar hér Björgvini í leikslok. Þeir stiga léttan stríðsdans og það gerði líka allt liðið út um allan völl. mynd/vilhelm
Markvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson átti ekki sinn besta leik í kvöld en hann steig heldur betur upp þegar mest á reyndi. Varði tvö síðustu skot Norðmanna og Ísland fylgdi þeirri markvörslu eftir með mörkunum sem skildi á milli. "Ég var allan tímann með þetta. Leikáætlunin var að verja ekki neitt í 55 mínútur og verja svo á fullu síðustu fimm mínúturnar," sagði Björgvin Páll kátur og hló dátt. "Þetta var fáranlega æðislegt. Karakterinn sem við sýnum í þessum leik er ruglaður. Þetta eru ekki hæfileikarnir og taktíkin sem skilar þessum sigri. Það er baráttan og íslenska hjartað. Við erum undir allan leikinn og kannski lærðum við eitthvað af leiknum við Króatíu. Það er liðið sem er yfir eftir 60 mínútur sem vinnur. "Það er jafn æðislegt að vinna í dag eins og það var ógeðslega fúlt að tapa gegn Króötum. Þetta er gott veganesti fyrir framhaldið," sagði Björgvin en athygli vakti að hann öskraði á Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóra HSÍ, snemma í leiknum en þá var lítið að ganga upp hjá honum. "Ég var aðeins að spjalla við Einar vin minn. Þetta var á vinsamlegum nótum. Við erum góðir félagar," sagði Björgvin himinlifandi rétt eins og allt liðið var eðlilega eftir leikinn lygilega.
Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira