Daði nýr formaður Vg í Reykjavík 9. október 2012 11:45 Nýkjörinn stjórn Vg í Reykjavík. Daði Heiðrúnarson Sigmarsson er þessi í grænu peysunni.
Daði Heiðrúnarson Sigmarsson var kjörinn formaður Vinstri grænna í Reykjavík í gærkvöldi. Fráfarandi formaður er Líf Magneudóttir. Raunar var stjórnin öll kosin eftir uppstillingu samkvæmt tilkynningu frá flokknum. Aðrir sem voru kjörnir í stjórn félagsins voru eftirfarandi: Anna Friðriksdóttir, Eyrún Eyþórsdóttir, Jana Salóme Jósepsdóttir, Magnús Helgason, Níels Alvin Níelsson og Vigdís Hlíf Sigurðardóttir. Varamenn sem voru kosnir voru: 1. Einar Gunnarsson 2. Þorgerður Agla Magnúsdóttir Aðalfundurinn samþykkti svo eftirfarandi ályktanir: Almenn stjórnmálaályktunAðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík fagnar margvíslegum árangri ríkisstjórnarinnar á kjörtímabilinu en hún tók við afleitu búi á erfiðum tímum. Þó bati efnahagslífsins sé umtalsverður og samfélagið tekið að glæðast á ný er enn margt óunnið í ýmsum framfaramálum. Má þar nefna að rammaáætlun hefur enn ekki verið samþykkt, að enn er óviðunandi launamunur kynjanna og brýn þörf á að gera átak í að uppræta kynbundið ofbeldi; að enn á eftir að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu, stoppa í göt í velferðar- og heilbrigðiskerfinu, ný stjórnarskrá hefur enn ekki litið dagsins ljós og ESB-umsóknarferlið vomir enn yfir þjóðinni. Ennfremur á Ísland eftir að segja sig úr hernaðarbandalaginu NATÓ.Nú styttist í næstu Alþingiskosningar en á kosningavetri hægir stundum á löggjafarstarfi. Á síðustu árum höfum við fengið staðfestingu á því hvað hægri öflin í landinu standa fyrir. Þau hafa haft á stefnuskrá sinni stórfelldan almennan niðurskurð, uppsagnir opinberra starfsmanna, niðurskurð í velferðarkerfinu og skattalækkanir sem gagnast mestmegnis fyrir hina efnameiri. Enn eru hægri menn tilbúnir að ganga á auðlindir náttúrunnar með stóriðjuáform sín og í skammsýni sinni virkja á kostnað komandi kynslóða. Sjónarmið og stefna Vinstri grænna hefur því aldrei verið meira aðkallandi en einmitt nú og brýnt að VG verði áfram í ríkisstjórn á næsta kjörtímabili. Hafa Vinstri græn staðið fyrir réttlátari leið úr efnahagserfiðleikum þjóðarinnar, leið sem fært hefur byrðarnar á breiðu bökin og hlíft hinum efnaminni.Á okkur hefur dunið linnulaus áróður afturhaldsafla og sjálftökumanna sem reyna með öllum tilrækum ráðum að gera VG tortryggileg og sá sundrungu í okkar raðir. Með góðri samstöðu er hægt að sigrast á þessum áróðri. Það er mikilvægt að Vinstrihreyfingin – grænt framboð fari vígreif í næstu kosningar. Flokkurinn þarf ekki að skammast sín fyrir verk sín eða stefnu. Hann á að vinna ötullega áfram að því að byggja hér sjálfbært samfélag jöfnuðar með félagslegt réttlæti, kvenfrelsi, sjálfstæða utanríkisstefnu og umhverfisvernd að leiðarljósi.Ályktun um fyrirkomulag forvalsAðalfundur Vinstri grænna í Reykjavík samþykkir að halda forval Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs vegna vals á framboðslista flokksins í báðum Reykjavíkurkjördæmum, laugardaginn 24. nóvember 2012. Skal forvalið vera bindandi fyrir efstu sex sætin. Nánari reglur skulu samþykktar á félagsfundi í samræmi við samræmdar lágmarksreglur VG.Ályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá Aðalfundur VGR, haldinn 8. Október 2010 fagnar því tækifæri sem þjóðin fær til að móta nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október nk. Fundurinn hvetur alla landsmenn til að nýta kosningarrétt sinn.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Skakkur á rafskútu Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fleiri fréttir Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi „Brikk-fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki“ Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Sjá meira