Íbúar eins og fangar á lyftulausu heimili 29. ágúst 2012 09:00 Föst heima Hrafnhildur kemst ekki út úr húsi af því að hún getur ekki notað stiga. Lyftubilunin kemur sér mjög illa fyrir hana sem og marga aðra íbúa hússins. fréttablaðið/vilhelm
Íbúar í þjónustuíbúðum aldraðra komast ekki út úr húsi því eina lyfta hússins hefur verið biluð síðan á mánudag. „Það eru svo margir sem ekki geta farið stiga," segir Hrafnhildur Thors, fyrrverandi húsmóðir og 92 ára gamall íbúi í þjónustuíbúð Sunnuhlíðar við Kópavogsbraut 1A. Hún hefur búið í húsinu í rúmlega tíu ár og verður 93 ára gömul í september. „Fólkinu finnst það vera eins og fangar þegar eitthvað svona kemur upp á," segir Hrafnhildur. Íbúar hússins vita ekki hversu lengi þeir þurfa að bíða eftir því að lyftan verði lagfærð, en húsvörður vonast til að lyftan komist í lag í dag. Langflestir íbúanna eiga allt undir því að komast niður í lyftu. Hrafnhildur er reið yfir því að á mánudag ætlaði hún að hitta ættingja sinn sem hafði misst ástvin. Hún komst hins vegar ekki út úr húsi því hún á orðið erfitt með gang og leggur ekki í stigana. „Ég borga mikið af peningum á mánuði í húsgjöld og er því mjög svekkt. Svo er ég nú orðin svo fullorðin að ég treysti mér ekki til þess að flytja héðan, það er ekki nokkur leið. Ég veit að ég gæti verið á góðum stað þar sem ég get verið á fyrstu hæð. En ég er ákaflega ánægð hérna og ég vil alls ekki flytja. Mér finnst þetta hins vegar ekki hægt." Þær upplýsingar fengust frá húsverði á Kópavogsbraut 1A að unnið sé að viðgerð á lyftunni. Viðgerðin sé tímafrek því mótor hafi brunnið yfir. Það er hins vegar vonast til þess að lyftan komist í lag í dag. Þá sé reynt að veita venjubundna þjónustu hússins þó lyftan sé biluð. Því sé matur borinn upp til þeirra sem þess óska. Hrafnhildur er þeirrar skoðunar að lyftur í svona húsum eigi ekki að vera bilaðar. Tvær eigi að vera í húsinu til að gulltryggja aðgengið. „Hver ber ábyrgð á því að hafa svona stórt hús með aðeins eina lyftu?" spyr hún. birgirh@frettabladid.is
Fréttir Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira