ESB vomir yfir VG í kosningabaráttunni 29. ágúst 2012 06:30 Fundað stíft Flokksráð VG samþykkti ályktun þar sem umræðu um samskipti Íslands og ESB er fagnað og hvatt til þess að hún haldi áfram.
Flokksráð Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs (VG) fundaði um helgina. Fyrirfram höfðu verið skapaðar nokkrar væntingar um að nú yrði látið sverfa til stáls í málefnum er varða umsókn að ESB. Raunin varð önnur, samþykkt var ályktun um samskipti Íslands við þjóðir og þjóðabandalög þar sem umræðunni um samskipti Íslands og ESB er fagnað og hvatt til þess að hún haldi áfram. Segja má að þetta sé að mörgu leyti endurtekið efni. Þeir eru ófáir fundirnir í stofnunum flokksins þar sem boðuð hefur verið stefnubreyting í Evrópumálum, enda fari aðildarumsókn gegn stefnu flokksins. Í aðdraganda funda hafa auglýsingar og undirskriftarlistar birst í fjölmiðlum, en á fundunum hefur stefna flokksins ekkert breyst. Katrín Jakobsdóttir, varaformaður flokksins, hélt ræðu við setningu fundarins. Hún vék þar að Evrópumálum og sagði flokksmenn skiptast í þrjá hópa; þá sem væru andstæðir aðild en litu á það mál sem eitt af mörgum sem vega mætti og meta, þá sem vildu að VG yrði einsmálshreyfing gegn ESB og loks fylgjendur aðildar. Síðasttaldi hópurinn væri lágvær og í minnihluta. Ef litið er til þeirra samþykkta sem stofnanir flokksins hafa gert verður ekki annað séð en að fyrsti hópurinn sé í miklum meirihluta í flokknum. Stefna hans er að vera andvígur aðild að ESB, en hagsmunir af ríkisstjórnarsamstarfinu hafa á öllum fundum verið teknir fram yfir þá andstöðu. Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýndi Katrínu mjög fyrir þessa framsetningu. Hann hefur lengi talað fyrir því að flokkurinn breyti um kúrs í Evrópumálum. Hins vegar hefur það sjónarmið ekki notið meirihlutafylgis á fundum stofnana flokksins. Sé horft til fundarins má ljóst vera að forystan vill beina athyglinni frá ESB og að árangri í efnahagsmálum. Mikið var lagt upp úr minna atvinnuleysi og auknum hagvexti og má þar sjá kosningaáherslur flokksins. Heimildarmenn Fréttablaðsins eru sammála um að þetta verði einmitt taktík flokksins í kosningabaráttunni. Það sé honum ekki í hag að beina sjónum um of að ESB.
Fréttir Tengdar fréttir Samþykkt með þorra atkvæða gegn 5 VG samþykkti 10. maí 2009 ályktun þar sem mælt var með því að mynduð yrði ríkisstjórn með Samfylkingu "á grundvelli þeirrar samstarfsyfirlýsingar sem nú liggur fyrir“. Ályktunin var samþykkt með þorra atkvæða gegn fimm, einn sat hjá. 29. ágúst 2012 07:00 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Fleiri fréttir Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Sjá meira
Samþykkt með þorra atkvæða gegn 5 VG samþykkti 10. maí 2009 ályktun þar sem mælt var með því að mynduð yrði ríkisstjórn með Samfylkingu "á grundvelli þeirrar samstarfsyfirlýsingar sem nú liggur fyrir“. Ályktunin var samþykkt með þorra atkvæða gegn fimm, einn sat hjá. 29. ágúst 2012 07:00