Innlent

Nauðsynlegt að hækka námslán

BBI skrifar
Háskólanemar á Háskólatorgi.
Háskólanemar á Háskólatorgi. Mynd/Stefán Karlsson
Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur stjórnvöld til að hækka fjárframlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Það telur stúdentaráð nauðsynlegt til að nemendur geti lifað mannsæmandi lífi í íslensku samfélagi.

Grunnframfærsla íslenskra námsmanna er rúmar 140 þúsund krónur á mánuði. Það er rúmlega 26 þúsund krónum minna en atvinnuleysisbætur. Stúdentaráð gerir þá kröfu að framfærslan verði hækkuð í það minnsta upp í fjárhæð atvinnuleysisbóta.

Í ályktun sem stúdentaráð sendi frá sér í dag segir að það skjóti skökku við að hvetja atvinnulausa til að sækja sér menntun en gera það um leið fjárhagslega hagkvæmara að halda sér á atvinnuleysisbótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×