Innlent

Björn fer fram gegn tveimur ráðherrum

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, ætlar að bjóða sig fram í fyrsta til annað sæti á lista flokksins í Reykjavík. Hann vill því leiða lista í öðru hvoru kjördæminu.

Björn Valur hefur verið þingmaður Norðausturkjördæmis síðan árið 2009, en hann skipaði þriðja sæti lista flokksins við síðustu kosningar. Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra og formaður VG, mun bjóða sig þar fram í fyrsta sætið í komandi þingkosningum, líkt og áður, en Þuríður Backman, sem skipaði annað sætið, mun draga sig í hlé.

Framboðsfrestur í Reykjavík rennur út á hádegi í dag en forvalið, sem er sameiginlegt fyrir Norður- og Suðurkjördæmi, fer fram 24. nóvember. Þar er valið í þrjú efstu sæti á hvorum lista fyrir sig.

Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG og mennta- og menningarmálaráðherra, og Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skipuðu fyrstu sætin hvor í sínu Reykjavíkurkjördæminu við síðustu kosningar og hafa báðar gefið kost á sér í þau sæti á ný.

Þá gefa þingmennirnir Árni Þór Sigurðsson og Álfheiður Ingadóttir kost á sér í sömu sæti og síðast, en þau sátu í öðrum sætum listanna. Flokkurinn á tvo þingmenn í hvoru kjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×