Innlent

Hverfisgata löguð fyrir 450 milljónir

Þórunn skrifar
Endurbæturnar hefjast á næsta ári en ráðast þarf í þessar miklu framkvæmdir í áföngum. Gangstéttir verða breikkaðar og hjólareinum komið fyrir. 
fréttablaðið/gva
Endurbæturnar hefjast á næsta ári en ráðast þarf í þessar miklu framkvæmdir í áföngum. Gangstéttir verða breikkaðar og hjólareinum komið fyrir. fréttablaðið/gva
450 milljónir króna verða settar í gagngerar endurbætur á Hverfisgötu á næsta ári. Einnig verða 200 milljónir settar í endurbætur á Frakkastíg.

„Það var eitt af því sem þessi meirihluti einsetti sér í byrjun að taka Hverfisgötuna í gegn, af því að Hverfisgatan er í grunninn mjög flott borgargata og er líka flott að hluta til út frá húsum og svoleiðis. En hún hefur einhvern veginn þróast í það að verða svona druslugata, það sést meðal annars á því að menn hafa verið að taka flott hús þaðan og flytja þau annað í bæinn,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

„En það er auðvitað takmarkað sem borgin getur gert því hún á yfirleitt ekki lóðirnar og ekki húsin, en það sem hún getur gert er að gera götuna flotta borgargötu,“ segir Hjálmar. Til stendur að laga götuna í tveimur áföngum og framkvæmdir hefjast næsta sumar. „Þá verður gatan tekin í gegn eftir ákveðnu plani, gangstéttir verða breikkaðar og allar lagnir endurnýjaðar, sem eru að hluta til sennilega hundrað ára gamlar. Þetta er mjög stór og dýr framkvæmd og það er kannski ástæðan fyrir því að menn hafa hikað við þetta.“

Hjálmar segir að endurbæturnar verði af svipuðu tagi og á Klapparstíg, sem hefur verið tekinn í gegn í áföngum á þessu ári. Þó verði breytingarnar á Hverfisgötu öðruvísi vegna þess að hún er og verður meiri umferðargata. Þar verður þó gert ráð fyrir hjólareinum auk breiðari gangstétta.

Einnig stendur til að hefja endurbætur á Frakkastíg næsta sumar. „Við teljum líka að Frakkastígur sé mjög flott gata. Meiningin er að taka allan Frakkastíg næsta sumar en það verður áfangaskipt eins og gert var á Klapparstíg. Þetta er sterk yfirlýsing frá borginni um að hún álíti þetta mikilvæga staði og það verður þá meira aðlaðandi fyrir fjárfesta og húsbyggjendur að fara af stað og byggja falleg hús á stórum, auðum lóðum við Hverfisgötuna og endurbæta þau sem eru orðin gömul og léleg.“

Þá segir Hjálmar að kynnt hafi verið fyrir borginni áhugaverð verkefni sem snúi að uppbyggingu húsa á Frakkastíg og Hverfisgötu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×