Innlent

Þrjátíu fyrirtæki nú vottuð

SHÁ skrifar
Nú eru 30 fyrirtæki á Íslandi sem hafa fengið rekjanleikavottun samkvæmt staðli Marine Stewardship Council (MSC). Þetta eru framleiðslu-, útflutnings- og verslunarfyrirtæki með sjávarafurðir.

Í tilkynningu segir að á síðustu mánuðum hafi verið jöfn fjölgun fyrirtækja sem sækja um rekjanleikavottun.

Þorsk- og ýsuveiðar hér á landi eru vottaðar samkvæmt fiskveiðistaðli MSC og einnig eru síldveiðar Íslendinga í aðalmati.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×