Innlent

"Þetta er hryllilegt veður“

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björnsbakarí á Skúlagötu, skammt frá Sæbrautinni þar sem þessi mynd var tekin.
Björnsbakarí á Skúlagötu, skammt frá Sæbrautinni þar sem þessi mynd var tekin. Mynd/ Pjetur.
Ástandið í húsunum sem næst standa Sæbrautinni er í einu orði sagt svakalegt. Björnsbakarí á Skúlagötunni er opið fyrir gesti en starfsfólk heldur rafmagshurð með handafli til að gestir komist inn um dyrnar.

„Við erum með svona rennihurð og hún neitar að opnast. Þannig að við þurfum að opna sjálf fyrir fólkinu með því að ýta hurðinni. Ég fór út í fimm sekúndur og ég fauk niður stigann. Ég var að labba niður stigann og ég bara fauk niður hann," segir María Rún Emilsdóttir starfsmaður í Björnsbakaríi. Hún slasaðist sem betur fer ekki. „Þetta er hryllilegt þetta veður, segir María Rún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×