Þöggun, andlegt og kynferðislegt ofbeldi meginniðurstaðan 2. nóvember 2012 11:40 Í nefndinni sitja Hjördís Hákonardóttir (fyrir miðju) Hrefna Friðriksdóttir og Jón Friðrik Sigurðsson.
Þöggun, andlegt ofbeldi og kynferðisofbeldi eru meginniðurstöður rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar sem rannsökuðu ásakanir gegn kirkjunnar mönnum á meðan þeir ráku Landakotsskóla, sem er vel að merkja ekki rekinn af kirkjunni lengur. Á blaðmannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í morgun voru helstu niðurstöður kynntar. Þar kom fram að rannsakað hefði verið starfsemi skólans og sumarviðdvöl á vegum kirkjunnar frá 1946. Rætt var við 30 einstaklinga sem 8 af þeim máttu sæta kynferðislegu ofbeldi. Ein frásögn til viðbótar gefur til kynna að slíkt hafi einnig átt sér stað varðandi níunda tilfellið. Nefndin áréttaði að ekki var farið tekin afstaða til ásakananna. Tveir gerendur eru nafngreindir í skýrslunni en það eru þau séra Georg, sem var skólastjóri Landakostsskóla þegar ofbeldið átti sér stað, og svo Margrét Muller sem starfaði sem kennari. Fram kemur í skýrslunni að ásakanir hafi einnig komið fram gegn tveimur öðrum prestum og kennara. Annar presturinn er látinn. Kennarinn var kærður fyrir kynferðislega áreitni. Sú rannsókn var að lokum felld niður vegna eindreginnar neitunar kennarans. Hann hætti störfum skömmu eftir það, eða um árið 1996. Meðal þess sem kemur fram í máli nefndarinnar er að skýr merki um þöggun hafi átt sér stað hjá starfsmönnum kirkjunnar. Þannig hafi reglusystur, prestar og/eða biskupar kaþólsku kirkjunnar hér á landi vanrækt skyldur sínar um rannsókn mála í kjölfar ásakana. Á blaðamannafundinum kom meðal annars fram að engin þeirra sem er sakaður um að hafa beitt börnin ofbeldi séu að vinna hjá Landakotsskóla. Síðasta tilvikið um kynferðislegt ofbeldi átti sér stað í skólanum árið 1988. Síðast tilvikið um andlegt ofbeldi sé árið 2003. Þess má geta að kirkjan hætti að reka skólann árið 2005.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira