Vond færð í aftakaveðri GS skrifar 2. nóvember 2012 06:57 Ýmsir þurftu aðstoð í ófærðinni.
Töluvert snjóaði allt frá Vestfjörðum og til Austurlands í nótt og var mikill skafrenningur og kóf í bálhvössum vindinum. Hann mældist yfir 60 metrar á sekúndu í hviðu í Hamarsfirði við Djúpavog í gærkvöldi og víða mældist hann yfir 50 í hviðum. Björgunarsveitir voru kallaðar út á nokkrum stöðum til að aðstoða vegfarendur í vandræðum, og til að hefta fok á Höfn og í Norðfirði. Einnig til að hemja þak á húsi í Mosfellsbæ, hemja báta í höfninni á Seyðisfriði og aftur til að hemja húsþak í Mosfellsbæ núna undir morgun. Rafmagn fór af hluta Snæfellsness í gærkvöldi en er aftur komið á. Flest allir fjallvegir eru ófærir og illa horfir með innanlandsflug þannig að segja má að samgöngur milli landshluta séu nánast lamaðar. Víða er líka þæfingsfærð í byggð, eins og til dæmis á Akureyri. Ekki er vitað um nein slys eða umtalsverð óhöpp, enda var umferð allstaðar í algjöru lágmarki, að sögn lögreglu. Innan við 40 fiskiskip eru á sjó, og eru þau flest í vari. Þetta er með því fæsta sem orðið hefur, utan fría um jól, páska og sjómannadag. Skólahald hefur víða verið fellt niður á óveðurssvæðunum í dag. -Áfram er spáð stormi á landinu.-
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent „Nú er komið að mér“ Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira