Almannavarnir: Fólk tekst á loft - óveður gengur niður á morgun 2. nóvember 2012 12:14 Anton Brink tók þessa myndi í morgun, en hann náði einnig myndir af fólki sem barðist við veðrið nærri höfðatorgi.
Lögregla höfuðborgarsvæðisins beinir því til íbúa að vera ekki á ferðinni að óþörfu. Gangandi vegfarendur hafa tekist á loft og slasast í óveðrinu samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum. Vísir birti einmitt myndir frá ljósmyndara Fréttablaðsins þar sem sjá má einstakling hreinlega fjúka eftir götu nærri Höfðatorgi í miðborg Reykjavíkur. Aftakaveður er víða á landinu og verkefni vegna veðurofsans fjölmörg. Alls eru um 150 - 170 björgunarsveitarmenn að störfum á höfuðborgarsvæðinu. Margar aðstoðarbeiðnir hafa borist Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Þá eru margir vegir erfiðir yfirferðar og jafnvel lokaðir á landinu vegna veðursins og því ekkert ferðaveður. Sjá nánar á vef Vegagerðarinnar www.vegagerdin.is. Enn og aftur varar Veðurstofan við norðan vonskuveðri á öllu landinu næsta sólarhring. Búast má við norðanstormi með vindhraða á bilinu 20-28 m/s um allt land og mjög hvassar vindhviður, allt að 55 m/s, við fjöll, einkum á S-verðu landinu frá Snæfellsnesi til Austfjarða. Spáð er talsverðri ofankomu á N- og A-landi í dag. Vindur fer að ganga niður á öllu landinu um hádegi á morgun (laugardag). Áfram verður þó víða hvasst fram á kvöld, en búist er við að lægi verulega um land allt aðfaranótt sunnudags. Á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni er búist við stormi í allan dag, en dregur lítið eitt úr vindi um hádegi á morgun (laugardag). Lægir síðan aðfaranótt sunnudags. Fólk er því beðið um að fylgjast vel með veðurspám.
Tengdar fréttir Magnaðar myndir: Fólk í stórhættu í ofsaveðri Ljósmyndari Fréttablaðsin fór á stúfana í morgun og náði þessum myndum af óveðrinu. Vindurinn er gríðarlegur við Höfðatorg og má þarna finna myndir af fólki sem rúllar hreinlega eftir götunni. 2. nóvember 2012 11:53 Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira
Magnaðar myndir: Fólk í stórhættu í ofsaveðri Ljósmyndari Fréttablaðsin fór á stúfana í morgun og náði þessum myndum af óveðrinu. Vindurinn er gríðarlegur við Höfðatorg og má þarna finna myndir af fólki sem rúllar hreinlega eftir götunni. 2. nóvember 2012 11:53