Innlent

Víða truflanir á rafmagnsdreifingu

Óveðrið sem nú gengur yfir landið hefur haft í för með sér nokkrar truflanir á rafmagnsdreifingu samkvæmt tilkynningu frá Rarik.

Á Vesturlandi varð bilun á Laugagerðislínu frá Vegamótum að Fíflholtum á Mýrum og því straumlaust á því svæði. Unnið er að viðgerð á línunni

Á Suðurlandi er Víkurlína biluð undir Eyjafjöllum og í Mýrdal. Drasl og járnplötur hafa verið að fjúka á línuna milli Hvamms og Hrútafells og einnig er vitað um brotinn staur við Pétursey. Unnið er að viðgerð, en erfitt að athafna sig sökum veðurhæðar.

Ennfremur er brotinn staur við Hunkubakka í línu milli Kirkjubæjarklausturs og Víkur. Unnið er að viðgerð.

Sökum þessara bilana er straumlaust hjá notendum undir Austur Eyjafjöllum, Mýrdal og á svæðinu milli Víkur og Klausturs. Varavélar eru keyrðar í Vík sem anna um 70 % af álaginu í Víkurþorpi.

Straumlaust er einnig í Selvogi, en þar er unnið að viðgerð. Ekki er um aðrar bilanir að ræða í dreifikerfi RARIK á Suðurlandi. Á Norðurlandi og Austurlandi er dreifikerfið í lagi.

Auk ofangreindra bilana í dreifikerfi RARIK hafa töluverðar truflanir verið hjá raforkunotendum víða um land frá flutningskerfi Landsnets.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×