Guðfríður Lilja hættir í pólitík Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. nóvember 2012 14:22 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir ætlar að hætta í stjórnmálum.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Suðvesturkjördæmi, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu á Alþingi við næstu þingkosningar. Guðfríður Lilja hefur setið á þingi frá 2009. Hún var um skeið þingflokksformaður VG og formaður félags- og tryggingamálanefndar og er nú formaður umhverfis- og samgöngunefndar þingsins. Guðfríður Lilja segir í tilkynningu að það séu forréttindi að starfa á Alþingi í umboði þjóðarinnar og fá þar tækifæri til að vinna að framgangi mikilvægra mála. Hún hafi í þingstörfum sínum reynt eftir megni að hafa í heiðri þau gildi og loforð sem Vinstrihreyfingin – grænt framboð gaf kjósendum fyrir síðustu Alþingiskosningar. „Ég tók ákvörðun um að fara í stjórnmál til að berjast fyrir betra samfélagi og virðingu fyrir náttúru Íslands og vonast áfram til að geta látið gott af mér leiða með öðrum hætti. Ég þakka stuðningsmönnum víðs vegar að hjartanlega fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt á þessari vegferð og óska samstarfsfólki alls góðs þótt leiðir skilji," segir hún.
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Óvissa, ólögleg sala á áfengi og ósk um ný hljóðfæri Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Fyrsta pallborð fyrir kosningarnar í maí: Mosfellsbær á sviðið Sjá meira