Innlent

Tré rifnuðu upp með rótum

BBI skrifar
30 ára gamalt tré rifnaði upp með rótum í Mosfellsbæ í dag.
30 ára gamalt tré rifnaði upp með rótum í Mosfellsbæ í dag. Mynd/Vignir Kristjánsson
Eitt gríðarstórt tré rifnaði upp með rótum í Mosfellsbæ í óveðrinu í dag. Björgunarsveitarmenn brugðust skjótt við og voru mættir á svæðið innan nokkurra mínútna.

„Þeir voru strax komnir og söguðu tréð niður," segir Fríða Líf Vignisdóttir, íbúi að Leirutanga 4 í Mosfellsbæ. Tréð rifnaði upp um fjögur leytið í dag og urðu íbúar ekki varir við það fyrr en nokkru síðar. Ekkert annað skemmdist þegar tréð féll.

Tréð sem um ræðir er um þrjátíu ára gamalt en þrátt fyrir þessa þrjátíu ára reynslu af óveðri stóðst það ekki veðurofsann í dag, enda er engu líkara en Sandy sjálf hafi ætt yfir Ísland. „Vanalega er svakaleg jólasería í þessu tré á hverju ári en verður líklega ekki þetta ár," segir Fríða.

Fríða hvetur fólk eindregið til að kaupa Neyðarkallinn til að styðja björgunarsveitirnar. „Þeir eru að passa upp á okkur. Standa sig gríðarlega vel," segir hún.

Tréð í Mosfellsbæ var ekki eina tréð sem stóðst ekki óveðrið, því eins og sjá má á myndinni hér að neðan klofnaði eitt myndarlegt 70 ára gamalt tré nánast í sundur í veðrinu í morgun. Slökkviliðsmenn voru hins vegar fljótir á staðinn og björguðu málunum með því að festa band utan um tréð svo það myndi ekki klofna í sundur og detta á götuna með tilheyrandi afleiðingum.



70 ára gamalt tré var við það að klofna á Kjartansgötu 1 í Norðurmýrinni.Mynd/Óðinn Snær



Fleiri fréttir

Sjá meira


×