Gildi krefst þess að útboðið á Eimskip verði rannsakað Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. nóvember 2012 16:51 mynd/ vilhelm.
Gildi-lífeyrissjóður sendi Fjármálaeftirlitinu í dag beiðni um rannsókn á því hvort rétt hafi verið staðið að útboði á hlutafé í Eimskipafélagi Íslands. Einnig hvort útfærsla á kaupréttum til stjórnenda félagsins standist skoðun og samanburð við þá mynd sem dregin var upp af kaupréttum í skráningarlýsingu félagsins. Áður hafði Festa óskað eftir því að FME rannsakaði útboðið. Forsvarsmenn Gildis-lífeyrissjóðs segja á vefsíðu fyrirtækisins að fyrirtækið eigi um 0,6% hlutabréfa í Eimskipafélagi Íslands sem sjóðurinn eignaðist í nauðasamningum félagsins á árinu 2009. Á aðalfundi félagsins þann 27. maí hafi legið fyrir tillaga að kaupréttaráætlun og hún samþykkt. Tillagan hafi gengið mun skemmra og verið um margt frábrugðin þeim kaupréttum sem síðar voru gerðir. „Í henni var ekkert fjallað um þá kauprétti sem veittir voru á árunum 2011 og 2012. Á aðal- og hluthafafundum félagsins á fyrrnefndum árum voru engar tillögur um frekari útfærslu kauprétta bornar undir hluthafa, hvorki um það hverjum yrðu boðnir slíkir kaupréttir né á hvaða gengi þeir skyldu vera," segir á vefsíðunni. Þá segir að það sé vandséð að útfærsla kaupréttanna hafi verið í samræmi við starfskjarastefnu félagsins og lög um hlutafélög. Gildi sendi stjórnendum félagsins og Straumi, öðrum af umsjónaraðilum útboðsins, fyrirspurn vegna málsins þann 23. október. Svör við fyrirspurninni voru ófullnægjandi að mati Gildis.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira