Innlent

Neyðarkallinn er veðurtepptur

BBI skrifar
Til stóð að hundruð sjálfboðaliða björgunarsveitanna tækju þátt í einni mikilvægustu fjáröflun Slysavarnafélagsins Landsbjargar í dag. Það gekk hins vegar ekki eftir.

Óveðrið sem gekk yfir landið í dag sá björgunarsveitarfólki fyrir nægum verkefnum en þegar hefur um 400 aðstoðarbeiðnum verið sinnt af björgunarsveitarfólki um land allt. Því má segja að veðrið hafi teppt Neyðarkallana, sem rötuðu af þessum sökum ekki til viðskiptavina.

„Vonandi kemur það ekki að sök og vonast Slysavarnafélagið Landsbjörg til þess að landsmenn taki vel á móti sjálfboðaliðum félagsins þegar þeir bjóða Neyðarkallinn á morgun," segir í fréttatilkynningu frá björgunarsveitunum.

Enn eru hundruðir björgunarsveitamanna að störfum í óveðrinu víða um land og á myndinni hér að neðan má sjá dreifingu þeirra kl. 17:00 í dag.

Dreifing björgunarsveita um landið klukkan fimm í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×