Formaður ræðir ekki þotuveiki flugþjóna 18. október 2012 08:00 Flugþjónar og -freyjur eru sagðar kvarta stöku sinnum undan óþægindum í flugi en formaður félags þeirra vill ekki ræða málið opinberlega. „
Þetta málefni er ekki til umræðu af hálfu stéttarfélagsins í fjölmiðlum,“ segir Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, aðspurð um veikindi flugþjóna í millilandaflugi. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á mánudag var flugþjónum í flugi Icelandair til Frankfurt í júlí gefið súrefni í flugstjórnarklefanum eftir að þeir fundu ítrekað til verulegra óþæginda í fluginu. Kvörtuðu þeir undan miklum höfuðverk, svima og doða í fótum. Haft var eftir Guðjóni Arngrímssyni, upplýsingafulltrúa Icelandair, að flugþjónar hefðu tilkynnt um viðlíka óþægindi einstaka sinnum síðan. Sigrún ítrekar að fulltrúar Flugfreyjufélagsins ræði málið eingöngu við viðkomandi fyrirtæki en ekki við almenning. „Mér finnst að það eigi fullt erindi við fyrirtækið af hálfu stéttarfélagsins og við leysum það þannig þegar og ef það kemur upp. Þetta eru mál sem leysast innanhúss,“ segir formaðurinn. Rannsóknarnefnd flugslysa í Þýskalandi vísar til þess í bráðabirgðaniðurstöðu varðandi uppákomuna í júlí að Boeing, sem framleiddi þotuna sem notuð var í umræddu flugi, segði vandamál í loftræstingu hafa komið upp í þessari tilteknu flugvélagerð. Guðjón sagði loftræstinguna í þotunni hafa verið hreinsaða og margyfirfarna síðan þennan dag í júlí. Mælingar hafi ætíð sýnt að loftið væri í fullkomnu lagi. - gar
Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira