1.559 útköll vegna ofbeldis 27. ágúst 2012 09:00 mynd/ getty.
Lögregla er kölluð út þrisvar til fjórum sinnum hvern dag ársins vegna átaka á heimilum landsins. Í 200 til 300 tilvikum á hverju ári hefur verið beitt ofbeldi, misalvarlegu. Þetta sýna gögn sem unnin voru af embætti Ríkislögreglustjóra fyrir Fréttablaðið fyrir rúmlega fimm ára tímabil frá 2007 til júní 2012. Fjöldi tilvika heimilisófriðar samkvæmt málaskrárkerfi lögreglunnar á þessu tímabili voru 7.071 alls. Ofbeldi var beitt í 1.559 tilvikum. Tölurnar sýna að ár hvert eru útköllin tólf til fjórtán hundruð en hefur fækkað lítillega á milli ára allt tímabilið. Athygli vekur hins vegar að alvarlegum tilvikum fjölgar hlutfallslega; árið 2007 var ofbeldi beitt í 272 málum en þá voru 1.116 mál skráð sem heimilisófriður. Árið 2011 voru 310 ofbeldismál en 895 þar sem ekki hafði verið beitt ofbeldi. Það ár, árið 2011, bárust um 850 tilkynningar um ofbeldi og ófrið til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ósættið mátti oft rekja til sambúðarslita og áfengi og fíkniefni komu við sögu í meirihluta tilvika. Í ársskýrslu segir: „Ef [fólk] var ekki að skaða hvert annað líkamlega fengu dauðir hlutir sömuleiðis iðulega að kenna á því. Eignaspjöll voru því fylgifiskar margra málanna, sem og grófar hótanir oft og tíðum. Börn voru stundum á heimilum við áðurnefndar aðstæður og er fátt dapurlegra en að upplifa slíkt.“ Í september í fyrra var hleypt af stokkunum tilraunaverkefni Barnaverndarstofu, barnaverndarnefnda og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu til að sinna sálgæslu barna. Verkefnið var til sex mánaða en framlengt til ársloka. Tilefnið er að ekki þótti nóg gert til að styðja börn sem verða vitni að ofbeldi inni á heimili sínu. Reynsla af verkefninu sýnir að í viku hverri verða börn vitni að ofbeldi á heimili sínu, að sögn Rögnu B. Guðbrandsdóttur félagsráðgjafa sem hefur umsjón með verkefninu. „Þetta getur verið mjög átakanlegt, en misalvarlegt. Oft eru það börnin sjálf sem þurfa að hringja. Þetta getur verið andlegt ofbeldi, öskur og hótanir. Því miður eru þarna líka dæmi um að heimilið er rústir einar, börnin í áfalli og kannski móðir sem þarf að flytja á slysadeild,“ segir Ragna. Í skýrslu um heimilisofbeldi, sem unnin var á vegum Ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var birt í maí 2010, kemur fram að þolendur heimilisofbeldis voru í 70 prósentum tilvikum konur en í 30 prósentum tilvika karlar. Gerendur voru í 76 prósentum tilvika karlar en í 24 prósentum tilvika konur.- shá
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotshrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Sjá meira