Innlent

Flestir treysta Landhelgisgæslunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landhelgisgæslan er sú stofnun á sviði réttarfars og dómstóla sem nýtur mest trausts í samfélaginu, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Traust til allra stofnana sem könnunin nær til hefur aukist frá síðustu mælingu, sem gerð var í febrúar 2011.

Alls sögðust 87,3% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar. Traust til Landhelgisgæslunnar hefur aukist nokkur frá því í febrúar 2011 þegar 80,8% sögust bera mikið traust til hennar.

Traust á dómskerfinu í heild hefur aukist nokkuð og sögðust 44,5% þeirra sem tóku afstöðu bera mikið traust til þess, borið saman við 33,6% í febrúar 2011.

Í könnuninni nú mældist Ríkislögreglustjóri njóta trausts 64,9% þeirra sem tóku afstöðu og 50,7% sögðust bera mikið traust til Ríkissaksóknara.

Traust til Hæstaréttar hækkar nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 38,8% sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 53,2% nú. Jafnframt hefur hlutfall þeirra sem bera lítið traust til Hæstaréttar minnkað talsvert á milli mælinga, úr 34,7% í febrúar 2011 í 19,5% nú.



Traust til Útlendingastofnunar eykst nokkuð frá því í febrúar 2011 þegar 22,2% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar, borið saman við 27,4% nú.

Traust til embættis sérstaks saksóknara hefur dregist nokkuð saman frá því í febrúar 2011 þegar 59,8% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til stofnunarinnar borið saman við 51,8% nú.

Hér má sjá könnun MMR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×