Sefur rótt þótt Ármann sé hissa 14. júlí 2012 08:00 Guðríður Arnardóttir
Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar, gagnrýndi í bæjarráði Kópavogs á fimmtudag að ekki væri staðið við ákvörðun fyrri meirihluta í bænum um hækkun á framlögum til foreldra barna hjá dagforeldrum. Fulltrúar meirihlutans svöruðu því til að þeirri upphæð sem væri á fjárhagsáætlun yrði varið í málaflokkinn en Guðríður sagði það algjörlega óeðlilegt þar sem börnin hefðu reynst fleiri en áætlað var. „Sambærilegt því er þegar fjöldi einstaklinga sem nýtur fjárhagsaðstoðar bæjarins verður meiri en ætlað er, þætti þá eðlilegt að lækka framlög til hvers og eins?“ spurði Guðríður. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri úr Sjálfstæðisflokki, kvaðst þá undrandi á því að Guðríður, sem oddviti fyrrverandi meirihluta, skyldi bóka sérstaklega að farið skyldi fram úr fjárhagsáætlun sem hún stóð sjálf fyrir. „Hvað fjárhagsaðstoðina varðar þá eru sérstök lög þar um og því ekki samanburðarhæft,“ bókaði bæjarstjórinn. Guðríður svaraði því þá til að ekki væri óeðlilegt að ræða fjárhagsaðstoð í þessu sambandi þar sem það sé ákvörðun sveitarfélaganna hversu há fjárhagsaðstoðin sé. „Annars má Ármann vera hissa fyrir mér – ekki missi ég svefn yfir því,“ sagði Guðríður.- gar
Mest lesið Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Erlent Fleiri fréttir Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Sjá meira