Innlent

Vonskuveðri spáð í dag

Veðurstofan spáir stormi á vestan- og norðanverðu landinu þegar líður á daginn. Það verður vaxandi norðaustanátt , fyrst á Vestfjörðum og á annesjum Norðanlands, eða 18 til 25 metrum á sekúndu um hádegisbil.

Snjókoma norðan til á landinu, en annars skúrir eða él. Nú í morgunsárið var allstaðar nokkurra gráðu hiti á láglendi, en heldur á að kólna í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×