Innlent

Ný útlán aukist verulega

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Birna Einarsdóttir er forstjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir er forstjóri Íslandsbanka. Mynd/ GVA.
Ný útlán til einstaklinga og fyrirtækja hafa aukist verulega síðast árið, segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, í samtali við Frjálsa verslun. Viðtal við hana birtist í blaðinu 300 stærstu sem kom út í vikunni.

ERGO fjármögnunarleiguþjónusta Íslandsbanka, hefur til að mynda veitt jafnmikið af nýjum útlánum á fyrri helmingi þessa árs og allt síðasta ár. Hún bendir á að fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja sé nú á lokasprettinum og mörg fyrirtæki hafi þar með fengið nauðsynlegt svigrúm til að fjárfesta á ný. „Fyrirtæki eru byrjun að hreyfa sig aftur í fjárfestingum þó að þau stígi varlega til jarðar," segir Birna í samtali við blaðið.

Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, segir í samtali við Vísi að þörf hafi skapast fyrir endurnýjun hjá mörgum fyrirtækjum. „Það var erfitt fyrir fyrirtæki að taka ákvarðanir í þeirri óvissu sem var uppi fyrst eftir bankahrunið. Eftir því sem málin skýrðust og fleiri fóru í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu skapaðist svigrúm að nýju til fjárfestinga. Þá hafði einnig skapast mikil endurnýjunarþörf á bíla og tæki. Þessar fjárfestingar hafa verið í mörgum atvinnugreinum, til að mynda í framleiðslu og ferðaþjónustu," segir Guðný Helga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×