Innlent

Ragnheiður Elín til fundar á NATO-þingi

Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Ragnheiður Elín Árnadóttir.
NATO-þingið kemur saman til ársfundar í Prag núna um helgina. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan, ástandið í Norður-Afríku og Miðausturlöndum auk sjóræningja og viðbrögð NATO og alþjóðasamfélagsins við þeirri ógn.

Einnig verður rætt um norðurslóðamál, samskipti NATO og Rússlands og upptök og afleiðingar „evrukrísunnar". Ragnheiður Elín Árnadóttir sækir fundinn af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×