Íslendingar taka þátt í risaverkefni 9. nóvember 2012 14:48
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra kynnti í dag stærsta þróunarsamvinnuverkefni sem Íslendingar hafa tekið þátt í, 65 milljarða króna sjóð sem Alþjóðabankinn hyggst koma upp til jarðhitanýtingar í Afríku. Sjóðurinn verður nýttur til að gera hagkvæmniathuganir og tilraunaboranir, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Samstarf Íslands og Alþjóðabankans er mesta átak til jarðhitanýtingar í þróunarríkjum frá upphafi og Ísland verður aðalráðgjafi bankans á því sviði. Við þetta tilefni var undirritað samkomulag Íslands við Norræna þróunarsjóðinn (NDF) um fjármögnun fyrsta hluta verkefnisins. Það felur í sér að íslensk stjórnvöld og þróunarsjóðurinn leggja 800 milljónir króna hvort til verkefnisins á næstu fimm árum. Norræni þróunarsjóðurinn gengur til liðs við verkefnið með framlagi til verkþátta sem snúa að jarðhitaleit og grunnrannsóknum og mun Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa yfirumsjón með því starfi. Markmiðið er að hraða jarðhitavæðingu í þrettán ríkjum Austur-Afríku sigdalsins; Djíbútí, Eþíópíu, Úganda, Erítreu, Kenýa, Suður-Súdan, Tansaníu, Malaví, Mósambik, Búrúndí, Rúanda, Sambíu og Sómalíu. Á þessu svæði er mikill orkuskortur en sérfræðingar telja að í sigdalnum sé mögulegt að virkja allt að 14.000 MW úr jarðhita og veita þannig allt að 150 milljónum manna aðgang að hreinni orku. Í samstarfinu felst að Íslendingar, með stuðningi Norræna þróunarsjóðsins aðstoði ríkin á svæðinu við jarðhitaleit, geri nauðsynlegar grunnrannsóknir og veiti liðsinni við gerð áætlana um jarðboranir til þess að meta stærð auðlindanna. Á hinn bóginn mun Alþjóðabankinn nýta eigin fjármögnunarleiðir með stuðningi ríkja, alþjóðlegra loftslagssjóða og þróunarbanka til að gera ríkjunum kleift að gera nauðsynlegar hagkvæmniathuganir og hefja slíkar boranir. Tilraunaboranir eru sá þáttur sem er kostnaðarsamastur og einn helsti flöskuhálsinn við jarðhitanýtingu. Ef niðurstöður verða jákvæðar verður í framhaldinu unnt að ráðast í skipulagðar virkjanaframkvæmdir til raforkuframleiðslu og fjölnýtingar jarðhitans í atvinnuskyni með virkri þátttöku einkageirans.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira