Börnin leika sér við hættulegan brunn 17. júlí 2012 04:30 Lokið á dælustöðinni er laust en tveimur stórum steinum hefur verið komið fyrir ofan á því. Lítið mál er að velta þeim af lokinu. Dælustöðin er skammt frá útikennslustofu og leikskóla. fréttablaðið/stefán
Dælustöðinni í Grundarhverfi á Kjalarnesi var upphaflega læst með loki. Börnin í hverfinu hafa fundið út hvernig á að opna brunninn. Svæðisstjóri hjá Orkuveitunni segir slysahættu vegna brunnsins. Lok á dælustöð í Grundarhverfi á Kjalarnesi stendur ólæst og opið. Íbúi á Kjalarnesi, Sigrún Jóhannsdóttir, segir staðinn vinsælan hjá krökkum sem búa í grenndinni. Hún hefur séð börn allt niður í sjö ára leika sér við dælustöðina. „Krakkarnir fundu fljótlega leið til að opna brunninn og sumir fóru niður. Þetta hefur verið voðalega spennandi,“ segir Sigrún Jóhannsdóttir, sem býr rétt hjá dælustöðinni. Upphaflega var lokinu læst en var ekki nógu stíft svo það small úr læsingunni ef það var togað upp í hliðunum. „Við erum búin að hringja í þónokkur skipti út af þessu og þeir hjá Orkuveitunni hafa komið hingað í þrígang. Nú er búið að sjóða járnbita inn í lokið til að styrkja það, en það er alveg ólæst þannig að það liggur bara laust ofan á brunninum. Þeir settu bara tvo stóra steina ofan á lokið en það er lítið mál að velta þeim ofan af,“ segir Sigrún. Starfsmenn Orkuveitunnar eru meðvitaðir um vandamálið. „Það er vandræðaástand með þennan brunn. Við erum búnir að gera ráðstafanir þannig að lokið sé ekki slitið upp af honum, en það virðist ekki hafa dugað,“ segir Arnór Einarsson svæðisstjóri. „Ég veit ekki hvað vakir fyrir þessum grislingum þarna, en það eru greinilega krakkar sem hafa gaman af að kíkja á skólpið,“ segir Arnór. Hann telur að mikil slysahætta geti stafað af brunninum. „Það á ekkert að vera að flækjast þarna, þetta er stórhættulegt og ekki fyrir hvern sem er. Við erum sérútbúnir þegar við förum þarna niður, með hjálm og fleira,“ segir Arnór. Hann segir að Orkuveitan muni reyna að laga lokið á brunninum við fyrsta tækifæri. „Það fóru menn þangað strax eftir mat til að reyna að betrumbæta ástandið.“ katrin@frettabladid.is
Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira