Sonurinn handleggsbrotinn og enginn tók eftir 17. júlí 2012 21:00 Atvikið átti sér stað á leikskóla í Hafnarfirði. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Móðir í Hafnarfirði hefur farið fram á að starfsfólk á leikskólum verði þjálfað í slysahjálp eftir að sonur hennar gekk handleggsbrotinn um deildir skólans í tvær klukkustundir. Atvikið átti sér stað í Hafnarfirði, 2. júlí síðastliðinn. Sonur Maríu Sveinsdóttur lék sér þá í íþróttasal ásamt öðrum krökkum og leiðbeinendum. Þegar María kemur að sækja piltinn tekur hún eftir að hann er með marblett á vinstri síðu sinni. María spurði starfsmenn leikskólans hvort að þeir vissu hvað hefði gerst. Þeim var ekki kunnugt um meiðslin. „Ég fer þá með piltinn út í bíl," segir María. „Þegar ég ætla að festa bílbeltið á hann tek ég eftir að vinstri hönd hans er mjög aflaga. Ég ætlaði að koma við hendina á honum en strákurinn kveinkaði sér mjög við það." María hljóp þá aftur inn á leikskólann og spurði á ný hvort að starfsfólkið hefði vitað til þess að drengurinn var slasaður. „Þá fékk ég óljós svör. Við brunuðum því upp á slysadeild, þar kom í ljós að sonur minn var brotinn á báðum pípum fyrir neðan olnboga, þetta voru afar ljót brot." Drengurinn þurfti síðar að gangast undir aðgerð vegna brotanna. Seinna meir kom í ljós að starfsfólk skólans hafði ekki upplýst stjórnendur um áhyggjur Maríu. Enn fremur er talið að pilturinn hafi verið handleggsbrotinn í allt að tvo klukkutíma áður en María kom að ná í hann. „Ég veit vel að slys geta átt sér stað," segir María. „Það sem ég er ósátt með er að enginn tók eftir þessu. Það þarf að vera algert skilyrði að starfsfólk leikskóla búi yfir kunnáttu til að koma auga á svona." María segir að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafi tekið málið til skoðunar. Þá fagnar hún því að málið skuli fá athygli og segir að mikill vilji sé fyrir því hjá yfirvöldum að tryggja það að slíkt gerist ekki aftur.María var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira