Leggja til að Alþingi þrýsti á bresk stjórnvöld vegna Sellafield 3. apríl 2012 20:45 Kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield. mynd/AFP
Verði þingsályktunartillaga sem nú liggur fyrir á Alþingi samþykkt mun ríkisstjórnin þrýsta á bresk stjórnvöld og stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield að minnka umfang hágeislavirks vökva sem geymdur er í stöðinni. Flutningsmenn tillögunar eru þau Álfheiður Ingadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir. Álfheiður segir að það sé í raun tvennt sem liggi til grundvallar ályktuninni. „Annars vegar hefur Geislavarnastofnun Noregs komist að þeirri niðurstöðu að ef eins 1% af þessum hágeislavirka vökva sem geymdur er í Sellafield sleppur út í andrúmsloftið gæti það leitt til sjö sinnum meira geislavirks úrfellis í Noregi en Tsjernóbyl-slysið olli," segir Álfheiður. „Hins vegar lofuðu stjórnendur í Sellafield og bresk stjórnvöld árið 2009 að fara að tappa niður það magn hágeislavirks úrgangs sem geymdur er í stöðinni," segir Álfheiður. „Þetta eru núna um 1.000 tonn af úrgangi sem geymd eru í Sellafield. Áætlað var að 200 tonn af úrgangi yrði í stöðinni árið 2016 - það er þó ekkert sem bendir til þess að þeir ætli að standa við það loforð." Álfheiður segir að lítil umræða hafi verið hér á landi um geislavirkan úrgang. Þá er þingsályktunartillagan liður í því að vekja athygli á þessum málum. Hægt er að nálgast ályktunina hér.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira