Launahækkun forstjórans stuðar lækna Karen Kjartansdóttir skrifar 7. september 2012 14:07
Formaður Læknafélags Íslands segir launahækkun forstjóra Landspítalans stuða marga innan stéttarinnar enda hafi mikill niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hafi kostað marga starfið og valdið launalækkun og auknu álagi. Fyrir hækkun var forstjóri Landspítalans launahæstur ríkisforstjóra landsins. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að hann hafi ekki gengið gegn kjararáði við mjög umdeilda launahækkun hjá Birni Zoega forstjóra Landspítalans. Eins og kunnugt er hækkaði Guðbjartur laun forstjórans um 450 þúsund krónur í vikunni. „Okkur þykir þetta óneitanlega skjóta skökku við þegar maður horfir á ástandið í heilbrigðistkerfinu og þann mikla niðurskurð sem verið hefur undanfarin ár sem meðal annars hafa falið í sér umtalsverðar launalækkanir til margra starfsmanna og margir hafa misst vinnuna þannig ég veit að þetta stuðar marga í minni stétt," segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands. Í yfirlýsingu frá stjórn Læknafélagsin í dag eru stjórnvöld hvött til að snú af braut niðurskurðar í heilbirgðiskerfinu svo endurnýja megi tæki á spítalanum og sporna við brottflutningu heilbrigðisstarfsmanna sem einnig geti fengið vinnu erlendis rétt eins og forstjórinn og draga úr álagi meðal þeirra. Björn Zoëga var fyrir þessa hækkun hæstur á lista Frjálsrar verslunar yfir launahæstu embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja með eina milljón og fimmhundruð og nítíuþúsund í laun á mánuði samkvæmt blaðinu. 450 þúsund króna launahækkunin sem hann fékk í liðinni viku hefur vakið hörð viðbrögð víða. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður félags hjúkrunarfræðinga ritar grein í Fréttablaðið í dag undir yfirsögninni „Mér er misboðið". Í greininni segir meðal annars að til að setja þessa launahækkun í samhengi við þær breytingar sem orðið hafa í þjónustu á LSH má benda á að í byrjun sumars var göngudeild fyrir kransæðasjúklinga lokað til að spara sem nam rúmlega einu stöðugildi hjúkrunarfræðings. Sú launahækkun sem ráðherra ákvarðaði forstjóra LSH nú, sé ekki fjarri þeirri fjárhæð sem sparaðist við lokun göngudeildarinnar. Þá bendir hún á að svo mikil eftirspurn er eftir hjúkrunarfræðingum í Noregi að allir íslenskir hjúkrunarfræðingar gætu fengið starf þar.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira