Áfram í haldi vegna árásar sem hann man ekki eftir BBI skrifar 7. september 2012 18:03
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem sakaður er um tilraun til manndráps. Maðurinn réðist að öðrum utan við Fíladelfíukirkjuna í lok júlí og veitti honum svöðusár með stórum hníf. Maðurinn er talinn hættulegur umhverfi sínu enda bendir allt til þess að hann hafi gerst sekur um lífshættulega árás. Hann er því úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli 2. málsgreinar 95. greinar sakamálalaga, en skilyrði fyrir því er að gæsluvarðhaldið sé nauðsynlegt með vísan til almannahagsmuna. Mennirnir tveir voru saman á partíi fyrir árásina en að sögn vitna rifust þeir í partíinu. Einhverra hluta vegna fóru þeir út þar sem þeim lenti saman fyrir utan Fíladelfíukirkjuna. Hvorugur þeirra man atburðarásina vel, enda voru þeir báðir allölvaðir. Skiptum þeirra lyktaði fyrir utan kirkjuna þar sem fórnarlambið lá eftir með stungusár á síðu en ákærði hljóp af vettvangi með stóran skurð á hendi. Ákærði hefur hvorki neitað sök né játað. Í greinargerð lögreglustjóra er talið að maðurinn hafi ekki haft nokkra ástæðu fyrir árásinni. Maðurinn verður í haldi til 4. október.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira