Listastarfsemin er í gíslingu skrifræðis 18. júlí 2012 04:30 Hús gamla Héraðsskólans á Laugarvatni Búið er að gera upp húsið, sem var farið að láta á sjá eins og þessi mynd ber með sér, en það þarf víst að taka til í kerfinu svo það komist í gagnið.fréttablaðið/völundur
Hús Héraðsskólans á Laugarvatni stendur autt og málefni þess virðast í ólestri. Á meðan gæti svo farið að starfsemi Gullkistunnar verði á hrakhólum eftir ár. Sveitarstjóri vill líf í húsið en hið opinbera, sem á það, virðir hann ekki svars. Svo gæti farið að Gullkistan, sem heldur úti gistiaðstöðu og aðsetri fyrir listamenn á Laugarvatni, verði á hrakhólum innan árs. Alda Sigurðardóttir, annar forkólfa Gullkistunnar, segir þetta undarlega upplifun því starfsemin hafi verið með blóma síðastliðin fjögur ár og fyrirtækið sé vel rekið og skuldlaust. Þar á ofan sé hús Héraðsskólans á Laugarvatni, sem ávallt hefur verið hinn ákjósanlegasti staður fyrir starfsemina, autt og ónotað um þessar mundir. Nú hefur Gullkistan aðstöðu við bæinn í Eyvindartungu og í íbúðum byggingafélags námsmanna. „Nú hefur okkur hins vegar verið sagt upp á bænum svo við höfum eitt ár þar til viðbótar en svo er framtíðin alls óráðin varðandi íbúðir byggingafélagsins,“ segir Alda. „Við höfum fengið þrjár umsóknir fyrir sumarið 2014 sem við höfum bara ekki getað svarað vegna þessarar óvissu.“ Hún segir að reynt hafi verið að fá aðstöðu í hinu sögufræga húsi Héraðsskólans á Laugarvatni sem stendur nú autt en málefni þess virðast í miklum ólestri. Byggingin er í eigu ríkisjóðs. „Við höfum rætt við menntamálaráðherra sem hefur skilning á málinu en það hefur samt ekkert þokast áfram,“ segir Alda. „Hugmyndin hjá Jónasi frá Hriflu, sem lét reisa húsið, var alltaf að hafa þarna skóla á veturna og síðan hótel á sumrin þar sem listamenn fengju að dvelja enda var Halldór Laxness þar mikið, Jón Leifs og aðrir merkir menn. En síðan urðum við Íslendingar neyslubrjálaðir í stríðinu og allar hugsjónir gleymdust og enn í dag virðumst við ekki ætla að vakna til vitundar. Hriflu-Jónas er örugglega búinn að margsnúa sér í gröfinni,“ segir Alda. Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri Bláskógarbyggðar, segir það einlæga ósk sveitarfélagsins að líf færist í húsið. „Við höfum marg-ítrekað það við bæði menntamálaráðuneytið og Fasteignir ríkissjóðs en við fáum bara engin svör,“ segir hann. Alda segir að Gullkistunni hafi verið boðið aðsetur á öðrum stöðum á landinu. „Það eru margir gáttaðir á þrjóskunni í okkur að vilja halda okkur í húsnæðisóreiðunni hér á Laugarvatni á meðan okkur standa opnar dyr annars staðar, en sagan og viss átthagabönd halda okkur hérna.“ Í ár tekur Gullkistan á móti hundraðasta gesti sínum en nú eru átta listamenn í kistunni. Hvorki bárust svör frá menntamálaráðherra né ráðuneytinu þegar Fréttablaðið óskaði eftir þeim í gær. jse@frettabladid.is
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira