Sandsílastofninn á enn undir högg að sækja Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. júlí 2012 10:42 Sandsílaveiðar.
Ástand sandsílastofnsins er enn slakt á suður- og vesturhluta landsins samkvæmt nýrri mælingu Hafrannsóknarstofnunar. Tíu daga sandsílaleiðangri á rannsóknarskipinu Dröfn RE 35 er nýlokið. Stærð sandsílastofnsins skiptir verulegu máli fyrir lífríkið því um er að ræða eina helstu fæðu allra sjófugla, ef súla og dílaskarfur er undanskilinn. Sjöunda sumarið í röð voru athuguð 4 svæði við landið, þ.e. Breiðafjörður, Faxaflói, Vestmannaeyjar að Vík og Ingólfshöfði. Í leiðangrinum fékkst talsvert af seiðum í Faxaflóa og fengust seiði um allt rannsóknarsvæðið þar. Þetta er mesta magn af seiðum sem fengist hefur í flóanum frá því að athuganir hófust árið 2006. Ekki er hægt að segja til um hvort seiðin skila sér sem nýliðun í stofninn fyrr en á næsta ári með því að meta þá fjölda 1 árs sandsíla. Mun minna fékkst af seiðum á öðrum svæðum. Lítið fékkst af eldra síli á öllum svæðum en þau sem fengust voru líklega flest af 2007 árganginum. Eins og í fyrra þá var þéttleiki eldra sandsílis lítill og einnig virtist útbreiðslan vera minni en áður innan hvers svæðis. Við fyrstu sýn virðist árgangurinn frá því í fyrra ekki ætla að skila nýliðun inn í stofninn sem máli skiptir. Hafrannsóknarstofnun segir að þessar fyrstu niðurstöður séu háðar óvissu því þær eru eingöngu byggðar á lengdarmælingum á síli en ekki á aldurslesningum. Vöxtur á milli ára er breytilegur hjá síli og einnig er mikill breytileiki í lengd eftir aldri innan árs og milli svæða. Á næstu mánuðum fara fram aldursgreiningar á sýnum ársins og frekari úrvinnsla. Niðurstöður leiðangursins gefa þó til kynna að jákvæð teikn séu á lofti í Faxaflóa vegna magns sandsílaseiða þar og verður áhugavert að sjá hvernig þeim reiðir af fyrsta árið. Hins vegar er sandsílastofninn ennþá í mikilli lægð og þessar athuganir benda til að nokkra aldurshópa vanti í stofninn.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Fleiri fréttir Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Sjá meira